Fara í efni

Malbiksviðgerðir á Suðurlandsvegi frá Landvegamótum að Selfossi

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:

Þriðjudaginn 18. ágúst og miðvikudaginn 19. ágúst er stefnt á að sinna malbiksviðgerðum á Suðurlandsvegi frá Landvegamótum að Selfossi. Einhverjar tafir geta orðið á umferð á meðan framkvæmdum stendur.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 til kl. 04:00 hvorn dag.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Ábyrgðarmaður veghaldara er Ólafur 845-0045 og ábyrgðarmaður verktaka er Elías Fannar 840-0846.


Síðast breytt: 17. ágúst 2026
Getum við bætt efni síðunnar?