Afmælisgjöf frá Kvenfélagi Hveragerðis
11.06
Frétt
Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri tekur hér formlega við gjöfinni af Sólborgu Guðmundsdóttur formanni Kvenfélags Hveragerðis.
Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri tók formlega við góðri gjöf frá Kvenfélagi Hveragerðis í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar. Gjöfin er útibekkur með blómaskreyttu byggðarmerki bæjarins fyrir ofan. Bekkurinn er staðsettur í Lystigarðinn Fossflöt og er kjörið að nýta hann í skemmtilegar og blómlegar myndatökur, eða bara til að slaka á og njóta. 
Bekkurinn er smíðaður á Litla Hrauni úr tré frá Snæfoksstöðum í Grímsnesi en grindina, sem er byggðarmerki Hveragerðisbæjar, smíðaði Hvergerðingurinn Jóhann Wolfram. Það var svo Bryndís Eir Þorsteinsdóttir sem skreytti merkið með blómum.
Hveragerðisbær þakkar kvenfélaginu fyrir þessa fallegu og góðu gjöf.


Síðast breytt: 11. júní 2026
Getum við bætt efni síðunnar?