Aðalskipulag Hveragerðisbæjar 2025-2037 - heildarendurskoðun
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti á fundi sínum þann 8. janúar 2026 að auglýsa heildarendurskoðun á Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037 með tilheyrandi fylgigögnum.
Markmið endurskoðunar aðalskipulags Hveragerðisbæjar er að tryggja sem besta samfellu í þróun svæða innan bæjarmarka, svo að nýting og uppbygging innviða geti átt sér stað í takt við fjölgun íbúa. Endurskoðun aðalskipulags er tilkomin vegna hraðari fjölgun íbúa en gildandi aðalskipulag gerði ráð fyrir, mótun samgöngustefnu ásamt því að veita Breiðumörk sérstaka athygli með rammaskipulagshluta vegna tilfærslu Suðurlandsvegar.
Aðalskipulag tekur mið af annarri stefnumótun bæjarins sem og Landsskipulagsstefnu og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Aðalskipulag Hveragerðisbæjar 2025-2037 liggur frammi á bæjarskrifstofu Hveragerðisbæjar að Breiðumörk 20 frá og með 12. janúar 2026 og er aðgengileg á Skipulagsgátt sem og heimasíðu Hveragerðisbæjar.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera skriflega athugasemd á Skipulagsgátt, skipulagsgatt.is, málsnúmer 162/2024, í síðasta lagi þann 1. mars 2026. Þar er einnig hægt að nálgast skipulagsgögn.
Allar fyrirspurnir skulu berast á netfangið hildur@hveragerdi.is
Skipulagsfulltrúi Hveragerðisbæjar