Fara í efni

850 m.kr. fjárfestingar í Hveragerði til 2022

Fréttatilkynning frá Veitum

850 milljón króna fjárfestingar í Hveragerði til 2022.

-Munu skapa fjölda starfa og auka umsvif.

Á stjórnarfundi Veitna þann 8. apríl sl. voru samþykktar aðgerðir til að bregðast við þeim afleiðingum sem Covid-19 faraldurinn hefur haft á atvinnulíf landsins. Veitur ætla að sýna samfélagslega ábyrgð í verki og auka fjárfestingar í mannaflsfrekum verkefnum sem hafa munu mikil áhrif í samfélaginu. Leiðarljósið er að viðhalda atvinnustigi í landinu eins og kostur er en áætlað er að aðgerðirnar skapi hátt í 200 störf á starfssvæði Veitna á suðvesturhorni landsins.

Samþykkt var að auka fjárfestingar Veitna um samtals 2 milljarða króna á árinu 2020. Jafnframt var samþykkt að stefna að því að auka fjárfestingar á árinu 2021 um allt að 4 milljarða króna en endanleg ákvörðun um aukningu fjárfestinga á árinu 2021 kemur til afgreiðslu við gerð fjárhagsspár í haust. Þessar fjárfestingar bætast við áður fyrirhugaðar fjárfestingar Veitna sem nema um 9 milljörðum kr. árlega. Veitur munu því fjárfesta fyrir samtals 11 milljarða króna á þessu ári og líklega 14 milljarða króna árið 2021.

Fjölmörg verkefni í Hveragerði

Veitur hafa undanfarið skilgreint mikilvæg verkefni í Hveragerði sem ráðist verður í á næstu tveim árum. Framkvæmdafé hefur verið aukið um 250 m.kr í ár og 300 m.kr á næsta ári ofan á þær 300 m.kr. sem þegar voru á áætlun á þessu tímabili. Samtals verður því 850 milljónum varið í framkvæmdir í Hveragerði á þessu ári og næsta.

Fyrst má nefna uppsetningu djúpdælu sem auka mun afhendingaröryggi hitaveitu í Hveragerði til framtíðar en álag á kerfið hefur stundum verið of mikið yfir köldustu mánuðina. Húsnæði Veitna við Bláskóga verður jafnframt breytt með það fyrir augum að varmaskiptir sem þar er geti tekið á móti mun heitara vatni sem eykur afhendingaröryggi hitaveitu.

Fljótlega munu Veitur einnig hefjast handa við byggingu nýrrar 500 m2 starfsstöðvar sem hýsa mun starfsmannaaðstöðu og lager í nýju iðnaðarhverfi Hveragerðis í Vorsabæ. Einnig er unnið að uppsetningu snjallmæla í bæjarfélaginu en með þeim er hægt að fjarlesa upplýsingar um hitastig og notkun.

Verkefnin eru öll þess eðlis að þau eru fyrir utan hefðbundin störf starfsfólks Veitna og verða því verktakar ráðnir til að sinna þeim. Þannig verða sköpuð fleiri störf til að vega á móti því atvinnuleysi sem skapast hefur af völdum Covid-19 faraldursins.

Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna:

„Við erum afar stolt og ánægð með að Veitur geta lagt sín lóð á vogarskálarnar og aukið umsvif í hagkerfinu nú þegar hin lamandi hönd covid veirunnar hefur farið yfir landið. Þessar fjárfestingar okkar munu bæta dreifikerfi vatns- rafmagns- og fráveitu á starfssvæði Veitna. Verkefnin í Hveragerði eru öll tengd hitaveitunni og samhliða því að fjölga störfum munu þau auka samkeppnishæfni atvinnulífs og tryggja betri lífsgæði íbúa til framtíðar.“

 

 

 

Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis:

„Hvergerðingar eru afar ánægðir með þær framkvæmdir sem framundan eru í bæjarfélaginu. Með tilkomu djúpdælunnar sjáum við fram á nýja tíma hvað varðar afhendingaröryggi því ljóst er að nægt heitt vatn er hér undir fótum okkar. Framkvæmdir fyrirtækisins verða lyftistöng fyrir bæjarfélagið og starfstöð Veitna sem rísa mun í nýja iðnaðarhverfinu við Vorsabæ mun verða áberandi og veita störf bæði á framkvæmdatíma sem og síðar. Það er mikilvægt að við sameinumst um að halda áfram framkvæmdum á þessum tíma og því er ánægjulegt að sjá að Veitur ohf og Hveragerðisbær eru á sömu skoðun hvað það varðar“.


Síðast breytt: 29. maí 2020
Getum við bætt efni síðunnar?