Skólanefnd
Dagskrá
1.Skóladagatöl leikskólanna Undralands og Óskalands 2026-2027
2603053
Eva Hrönn Jónsdóttir aðstoðarleikskólastjóri Óskalands og Anna Erla Valdimarsdóttir leikskólastjóri Undralands kynna dagatöl leikskólanna fyrir skólaárið 2026-2027.
Skólanefnd þakkar fyrir kynningu á skóladagatölum leikskólanna Óskalands og Undralands. Frestað er afgreiðslu skóladagatala leikskólanna þar til búið er að bera það undir foreldraráð leikskólans Undralands.
2.Skóladagatal GÍH skólaárið 2026-2027
2603055
Matthea Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri kynnir skóladagatal GÍH fyrir skólaárið 2026-2027.
Skólanefnd þakkar Mattheu Sigurðardóttur aðstoðarskólastjóra fyrir kynningu á skóladagatali GÍH fyrir skólaárið 2026-2027. Skólanefnd samþykkir skóladagatalið.
3.Dagatal frístundamiðstöðvarinnar Bungubrekku starfsárið 2026-2027
2603054
Liljar Mar Pétursson kynnir dagatal frístundamiðstöðvarinnar Bungubrekku fyrir starfsárið 2026-2027.
Skólanefnd þakkar Liljari Mar Péturssyni fyrir kynningu á dagatali Bungubrekku fyrir skólaárið 2026-2027. Skólnefnd hvetur forstöðumann til að skoða fyrirkomulag vinnuskólans í júlí með það að markmiði að auka sveigjanleika starfsins á þeim tíma.
4.Innileiðing farsældarlaga í Hveragerði - staða og næstu skref
2603056
Elfa Birkisdóttir innleiðingastjóri farsældarlaganna í Hveragerði fer yfir stöðuna og næstu skref.
Skólanefnd þakkar Elfu Birkisdóttur fyrir kynningu á stöðu innleiðingar farsældarlaganna í Hveragerðisbæ.
Ánægjulegt er að sjá hversu vel sveitarfélagið stendur í innleiðingu farsældarlaganna og ekki síður hve samstarfið gengur vel milli allra aðila.
Ánægjulegt er að sjá hversu vel sveitarfélagið stendur í innleiðingu farsældarlaganna og ekki síður hve samstarfið gengur vel milli allra aðila.
Fundi slitið - kl. 10:00.
Getum við bætt efni síðunnar?