Skipulags- og umhverfisnefnd
Dagskrá
Arnar setti fund og leitaði eftir athugasemdum við fundarboð. Engar athugasemdir voru gerðar.
1.Deiliskipulag hreinsistöðvar í landi Vorsbæjar - deiliskipulagsbreyting vegna Þorlákshafnarlínu 2
2603023
Lögð er fram að nýju eftir auglýsingu tillaga að breytingu á deiliskipulagi hreinsistöðvar í landi Vorsbæjar - deiliskipulagsbreyting vegna Þorlákshafnarlínu 2 dags. 2. mars 2026 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa vegna innkominna athugasemda dags. 10. júní 2026. Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkt á fundi sínum þann 12. mars 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulaginu í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Markmið deiliskipulagsbreytingarinnar er að heimila legu Þorlákshafnarlínu 2 (TO2, 132 kV jarðstrengur) frá tengivirki austan Varmár að Þorlákshöfn og mun línan (jarðstrengur) liggja um útivistarsvæði norðan við hreinsistöðina og áfram norðan við athafnasvæði við Vorsabæ og svo áfram meðfram Hringvegi og til suðurs með Þorlákshafnarvegi. Í gildandi dsk. er sýnt hundasleppisvæði og göngustígur á útivistarsvæðinu sem lega línunnar fer um. Breytingin varðar á engan hátt starfsemi hreinsistöðvar né mannvirki innan þeirrar lóðar.
Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 17. mars til 28. apríl 2026. Alls bárust tvær umsagnir frá eftirtöldum aðilum: Vegagerðin - Suðursvæði dags. 31. mars og Náttúrufræðistofnun dags. 27. apríl 2026.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
2.Laufskógar 6
2610056
Lögð er fram fyrirspurn frá Axel Kaaber arkitekt hjá TÓ arkitektum frá 25. september s.l. um uppbyggingu á lóð Laufskóga 6.
Laufskógar eru á íbúðasvæði ÍB7 í gildandi aðalskipulagi og á svæðinu er hverfisvernd sem merkt er HV5. Í lýsingu aðalskipulags kemur fram að það er eitt af elstu hverfum bæjarins og nær yfir Skáldahverfið og umlykur Hveragarðinn. Hverfið telst fullbyggt ef undan eru skildar lóðir við Laufskóga sem heyra til dvalarheimilisins Grundar og eru útivistarsvæði. Aðallega eru hús á einni hæð en einnig nokkur lítil fjölbýli. Á lóðinni er 40 m2 sumarhús og gerir tillagan ráð fyrir að rífa það og byggja tvö 250 m2 einbýlishús á uppskiptri lóð. Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir lóðina en deiliskipulag fyrir norðanverðan reitinn tók gildi árið 2002.

Nefndin tekur jákvætt í fyrirspurn um að skipta upp lóð og byggja sitt hvort einbýlishúsið á hvorri lóð, í samræmi við heimild í aðalskipulagi til að þétta byggð og þá aðallega á baklóðum, með þeim fyrirvörum sem settir eru fram í umsögn skipulagsfulltrúa. Auk þess leggur nefndin til að fjarlægð að lóðamörkum í norðri verði ekki minni en 4 metrar. Umsókn um byggingarleyfi yrði grenndarkynnt bærist hún.
3.Erindisbréf skipulags- og umhverfisnefndar
2410170
Lagt er fram að nýju gildandi erindisbréf skipulags- og umhverfisnefndar. Erindisbréfið var lagt fram til kynningar á 34. fundi nefndarinnar í upphafi nýs kjörtímabils og fól nefndin skipulagsfulltrúa að kanna hvort unnt væri að breyta tímamörkum í erindisbréfinu.
Til kynningar. Mælst er til að vinnuregla nefndarinnar verði þannig að fundargögn og dagskrá fundar berist 3 virkum dögum fyrir fundardag.
4.Framtíð sameiginlegra verkefna sveitarfélaga
2608036
Lagt er fram að nýju erindi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands til Hveragerðisbæjar þar sem vakin er athygli á að með flutningi eftirlitsverkefna til ríkisins frá og með næstu áramótum verði veruleg breyting á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Lagt er einnig fram minnisblað umhverfisfulltrúa um málið dags. 15. október 2026.
Málið var tekið fyrir á 34. fundi nefndarinnar þar sem efnislegri meðferð var vísað til bæjarstjórnar. Á fundi bæjarráðs þann 9. júlí 2026 var sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs og umhverfisfulltrúa falið að hefja undirbúning vegna þeirra breytinga sem taka gildi um næstu áramót þegar Stofnun atvinnuveganna tekur við stórum hluta verkefna Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs. Fela verkefnin í sér að meta áhrif breytinganna á Hveragerðisbæ og eiga viðræður við nágrannasveitarfélög um mögulegt samstarf. Fyrirliggjandi gögn verða hluti af þeirri vinnu og er óskað eftir tillögum að mögulegum útfærslum í október.

Nefndin leggur til að leitað verði til þriðja aðila til að sinna ákveðnum verkefnum sem eru starfsleyfisskyld, svo sem eftirlit með vatnsveitu og fráveitu. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að leita til Samtaka íslenskra sveitarfélaga um útfærslu annarra verkefna sveitarfélaga sem lýst er í minnisblaði umhverfisfulltrúa.
5.Vatnaáætlun
2607042
Lagt er fram bréf frá Umhverfis- og orkustofnun sem barst með tölvupósti dags. 8. júlí s.l.
Umhverfis- og orkustofnun vinnur að endurskoðun vatnaáætlunar samkvæmt lögum nr.
36/2011 um stjórn vatnamála. Fyrsta vatnaáætlun tók gildi í apríl 2022 og gildir til 2027. Endurskoðuð vatnaáætlun verður staðfest í byrjun árs 2028. Í 20. grein laganna segir frá þeim þáttum sem gera þarf grein fyrir í vatnaáætlun. Í e-lið segir að gera skuli grein fyrir áætlunum um nýjar framkvæmdir, ný sjálfbær umsvif eða breytingum á vatnshlotum.
Umhverfis- og orkustofnun óskar því eftir upplýsingum um áætlanir um verkefni sem
stefnt er að komi til framkvæmda á tímabilinu 2028-2033 sem munu líklega valda því að umhverfismarkmið vatnshlots næst ekki og sækja þurfi um heimild til breytinga á
vatnshloti skv. 18 gr. laga um stjórn vatnamála.

Nefndin leggur til að fela umhverfisfulltrúa og skipulagsfulltrúa að taka saman umræddar upplýsingar og senda til Umhverfis- og orkustofnunar.
6.Hönnun göngustígs við Varmá - Landslag ehf.
2305107
Lagt er fram minnisblað skipulagsfulltrúa um undirbúning að umsókn í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða en opið er fyrir umsóknir til 27. október n.k.
Árið 2021 var sótt um verkefni og styrkur veittur til verkefnis forhönnunar fyrir verkefnið Gönguleið og áningarstaðir við Varmá. Landslagsarkitektastofan Landslag ehf. stóð að gerð forhönnunarinnar sem náði til stígs allt frá listigarðinum Fossflöt og norður með Varmá að Baulufossi. Gert er ráð fyrir að stígurinn verði að mestu timburstígur en stálristar notaðar þar sem þurfa þykir. Nokkrir útsýnispallar eru á leið stígsins og liggur stígurinn sömuleiðis framhjá gömlu rafstöðinni og bætir til muna aðgengi að henni. Stígurinn er á gildandi deiliskipulagi Varmár sem samþykkt var 12. maí 2021 og staðfest með birtingu í B-deild 19. júlí 2021 og hefur einnig á aðgerðaráætlun áfangastaða frá árinu 2024.

Nefndin fagnar áformum um að sækja um styrk til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða fyrir stígagerð meðfram Varmá í samræmi við gildandi deiliskipulag Varmár og forhönnun landslagsarkitektastofunnar Landslags.
7.Hraðakstur úrbótaverkefni
2607016
Lagt er fram minnisblað umhverfisfulltrúa dags. 15. október s.l. um langtímaaðgerðir til hraðatakmarkandi aðgerða í bænum. Einnig eru skammtímaaðgerðir með sex færanlegum hraðatakmarkandi hliðum sem búið er að koma upp í samræmi við bókun bæjarstjórnar þann 1. október s.l. reifaðar.
Nefndin fagnar nýlegum viðbótum á hraðatakmarkandi hliðum í bænum og leggur til við umhverfisfulltrúa og skipulagsfulltrúa að vinna áfram að úrbótum með fleiri útfærslum af færanlegum hraðatakmarkandi lausnum sem og varanlegum lausnum. Einnig bendir nefndin bæjarstjórn á samgöngustefnu aðalskipulags þar sem 30 km/klst hámarkshraði er lagður til innan bæjarflatarinnar.
8.Hraðahrindrun við Hóla róló
2610057
Lagt er fram bréf frá Bryndísi Rós Viðarsdóttur, móttekið 9. október 2026, þar sem hún óskar eftir hraðatakmarandi þrengingu rétt áður en komið er að gangbrautinni austan megin við Hóla róló.
Nefndin þakkar ábendinguna og leggur til við umhverfisfulltrúa og skipulagsfulltrúa að vinna áfram heildstætt að úrbótum með fleiri útfærslum af færanlegum hraðatakmarkandi lausnum sem og varanlegum lausnum.
9.Hraðakstur Sunnumörk - 3 ábending
2610059
Bréf frá Ernu Pálrúnu Árnadóttur, móttekið 9. október 2026. Í bréfinu kemur fram að hún er nú í þriðja skipti að senda inn ábendingu varðandi hraðakstur í Sunnumörk.
Nefndin þakkar ábendinguna og leggur til við umhverfisfulltrúa og skipulagsfulltrúa að vinna áfram heildstætt að úrbótum með fleiri útfærslum af færanlegum hraðatakmarkandi lausnum sem og varanlegum lausnum.
10.Hraðakstur Grænamörk
2610061
Lagt er fram bréf frá Ingibjörgu Sif Sigurbjörnsdóttur, móttekið 9. október 2026, þar sem óskað er eftir hraðahindrun í Grænumörk.
Nefndin þakkar ábendinguna og leggur til við umhverfisfulltrúa og skipulagsfulltrúa að vinna áfram heildstætt að úrbótum með fleiri útfærslum af færanlegum hraðatakmarkandi lausnum sem og varanlegum lausnum.
11.Hraðakstur í Heiðmörk
2610144
Lagt er fram bréf frá Sturlu Rúnari Sigurðssyni, móttekið 16. október 2026, þar sem óskað er eftir úrbótum vegna hraðaksturs í Heiðmörk.
Nefndin þakkar ábendinguna og leggur til við umhverfisfulltrúa og skipulagsfulltrúa að vinna áfram heildstætt að úrbótum með fleiri útfærslum af færanlegum hraðatakmarkandi lausnum sem og varanlegum lausnum.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 19:30.
Getum við bætt efni síðunnar?