Fara í efni

Skipulags- og umhverfisnefnd

32. fundur 23. júní 2026 kl. 17:00 - 20:45 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Arnar Hannes Halldórsson formaður
  • Sigurður Einar Guðjónsson varaformaður
  • Ingibjörg Zoëga Björnsdóttir aðalmaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir aðalmaður
  • Einar Alexander Haraldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Jón Friðrik Matthíasson byggingarfulltrúi
  • Hildur Gunnarsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Höskuldur Þorbjarnarson Umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði: Hildur Gunnarsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá
Arnar setti fund og leitaði eftir athugasemdum við fundarboðun sem komu ekki fram.

Bókun vegna aðalskipulags:
Eins og fram kemur í samstarfslýsingu S-listans og D-listans um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Hveragerðisbæjar stendur til að taka nýtt aðalskipulag til endurskoðunar. Í skipulaginu er margt gott og því viljum við halda.

1.Deiliskipulagsbreyting hesthúsahverfis á Vorsabæjarvöllum vegna stækkunar hesthúsahverfis og golfvallar

2401118

Lögð er fram eftir auglýsingu tillaga að deiliskipulagsbreytingu hesthúsahverfis á Vorsabæjarvöllum vegna stækkunar hesthúsahverfis og golfvallar dags. 28.11.2025 og breytt 12.06.2026 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa vegna innkominna athugasemda dags. 9.6.2026.

Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti á fundi sínum þann 11. desember 2025 að auglýsa deiliskipulagsbreytingu fyrir hesthúsahverfi og golfvöll sem er breyting á deiliskipulagi Hesthúsahverfis á Vorsabæjarvöllum sem samþykkt var 10.04.1997 með breytingu 8.5.2025.

Markmið deiliskipulagsbreytingarinnar er að stækka bæði hesthúsasvæði innan landnotkunarreitar ÍÞ1 í núgildandi aðalskipulagi og golfvöll innan landnotkunarreitar ÍÞ2, sem er stækkaður í nýsamþykktu aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037 og var auglýst samhliða. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu fjölgar lóðum fyrir hesthús og skilgreinir byggingareit fyrir reiðhöll og reiti fyrir ýmis gerði, fjölgar golfbrautum innan bæjarmarka Hveragerðis og aðlagar reið- og gönguleiðir á svæðinu.

Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 9. janúar til 22. febrúar 2026. Alls bárust sex umsagnir frá eftirtöldum aðilum: Erlingur Arthúrsson dags. 4. febrúar, Veiðifélag Varmár og Þorleifslækjar dags. 16. febrúar, Náttúrufræðistofnun dags. 17. febrúar, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands dags. 18. febrúar og Veitur dags. 19. febrúar. Minjastofnun Íslands sendi umsögn eftir að athugasemdafrestur rann út eða þann 31. mars s.l.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna með áorðnum breytingum í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sem og umsögn skipulagsfulltrúa sem svör við innkomnum athugasemdum.

2.Deiliskipulag hreinsistöðvar í landi Vorsbæjar - deiliskipulagsbreyting vegna Þorlákshafnarlínu 2

2603023

Lögð er fram eftir auglýsingu tillaga að breytingu á deiliskipulagi hreinsistöðvar í landi Vorsbæjar - deiliskipulagsbreyting vegna Þorlákshafnarlínu 2 dags. 2. mars 2026 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa vegna innkominna athugasemda dags. 10. júní 2026. Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkt á fundi sínum þann 12. mars 2026 að auglýsa breytingu á deiliskipulaginu í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Markmið deiliskipulagsbreytingarinnar er að heimila legu Þorlákshafnarlínu 2 (TO2, 132 kV jarðstrengur) frá tengivirki austan Varmár að Þorlákshöfn og mun línan (jarðstrengur) liggja um útivistarsvæði norðan við hreinsistöðina og áfram norðan við athafnasvæði við Vorsabæ og svo áfram meðfram Hringvegi og til suðurs með Þorlákshafnarvegi. Í gildandi dsk. er sýnt hundasleppisvæði og göngustígur á útivistarsvæðinu sem lega línunnar fer um. Breytingin varðar á engan hátt starfsemi hreinsistöðvar né mannvirki innan þeirrar lóðar.

Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 17. mars til 28. apríl 2026. Alls bárust tvær umsagnir frá eftirtöldum aðilum: Vegagerðin - Suðursvæði dags. 31. mars og Náttúrufræðistofnun dags. 27. apríl 2026.

Meirihluti nefndarinnar leggur til að fresta málinu í samræmi við bókun í upphafi fundar. Fulltrúar Okkar Hveragerðis og Framsóknarflokks sitja hjá.

3.Deiliskipulagsbreyting Ás- og Grundarsvæðis vegna Hverahlíðar - sorpgerði

2606069

Lögð er fram óveruleg deiliskipulagsbreyting á deiliskipulagi Ás- og Grundarsvæðis við Hverahlíð vegna sorpgerðis dags. 11. júní 2026.

Breytingin felst í því að byggingarreitur SÞ1 á lóð Bröttuhlíðar 18-22 er stækkaður í norð-austur horni lóðar undir sorpgeymsluskýli. Hæð sorpskýlanna verður að hámarki 3,5m en efra skýlið verður fellt inn í núv. landslag. Núverandi bílastæðum fækkar um 3 stæði vegna skýlanna. Kvöð um aðkomu vegna sorps er færð að innkeyrslu á lóðarmörkum. Byggingarheimildir haldast óbreyttar innan reits SÞ1. Ofangreind breyting er í samræmi við gildandi aðalskipulag.

Um er að ræða óveruleg frávik frá gildandi deiliskipulagi þar sem hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Því er ekki talin þörf á að grenndarkynna breytinguna sérstaklega. Byggingarheimildir haldast óbreyttar og skipulagsskilmálar haldast einnig óbreyttir.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2. og 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

4.Heiðmörk 30-36, Grundarreitur - nýtt deiliskipulag

2510173

Lögð er fram eftir auglýsingu tillaga að deiliskipulagi Heiðmarkar 30-36, Grundarreitar dags. 27.1.26 með innkomnum athugasemdum. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 9. apríl 2026 að auglýsa deiliskipulag Grundarreitar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Helstu markmið með nýju deiliskipulagi eru að tryggja að uppbygging íbúðabyggðar falli vel að núverandi byggð, byggðarmynstri og skipulagi líkt og lagt upp er með í arkitektúrstefnu í aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037 að skapa heilsteypt, hlýlegt svæði/hverfi með notalegu yfirbragði, að fjölbreytni sé í íbúðastærðum, að nýta svæðið vel en verðmæti svæðisins liggur m.a. í nálægð við miðbæ, skóla og náttúru. Að sýna sérkennum og sögu svæðisins virðingu, að móta byggð sem er til þess fallin að stuðla að góðu mannlífi og sambúð ólíkra hópa, að tryggja góð tengsl við umhverfið með fyrirkomulagi stíga, gatna, inngarða og með ofanvatnslausnum.

Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 22. apríl til 3. júní 2026. Alls bárust sex umsagnir frá eftirtöldum aðilum: Brunavarnir Árnessýslu, Veitur, Rarik, Míla, Minjastofnun Íslands og athugasemd með undirskriftalista 243 manna.

Skipulags- og umhverfisnefnd telur mikilvægt að farið verði yfir þær athugasemdir sem borist hafa á auglýsingartíma og metið hvort tilefni sé til breytinga á tillögunni með hliðsjón af þeim sjónarmiðum sem þar koma fram. Mikilvægt er að málsmeðferðin tryggi að öll málefnaleg sjónarmið, þar á meðal framkomnar athugasemdir íbúa, geti haft raunverulegt vægi við endanlega afgreiðslu tillögunnar.
Við þá vinnu verði sérstaklega horft til umfangs uppbyggingarinnar, samspils hennar við aðliggjandi byggð, ásýndar svæðisins og áhrifa á umferð og umferðaröryggi. Nefndin telur mikilvægt að leitað verði leiða til að samræma sem best sjónarmið íbúa, stefnu aðalskipulags og forsendur uppbyggingar á reitnum.
Afgreiðslu málsins er því frestað. Skipulags- og umhverfisnefnd felur formanni skipulags- og umhverfisnefndar og skipulagsfulltrúa, í samráði við viðeigandi hagaðila að vinna áfram að mögulegum breytingum á tillögunni og leggja fram mat á því hvernig hægt sé að samræma betur sjónarmið íbúa, stefnu aðalskipulags, hagsmuni sveitarfélagsins og forsendur uppbyggingaraðila.
Hlé var gert á fundinum kl. 17:58.
Fundi var framhaldið kl.18:21.
Hlé var gert á fundi kl. 18:27.
Fundi var framhaldið kl. 18:29.
Sigurður Einar vék af fundi kl. 18:31.

5.Umsókn um afnot af bæjarlandi fyrir gusu og starfsleyfi

2604011

Lögð er fram umsókn um afnot af bæjarlandi fyrir gusu við bakka Varmár við Baulu f.h. óstofnaðs félags Hveragusa ehf.

Um er að ræða lítið svæði fyrir 35-40 m² mannvirki og er sótt um leigusamning til 5 til 10 ára með endurnýjunarmöguleika, sem gefur bænum full yfirráð á svæðinu en gefur Hveragusu ehf. nauðsynlegt öryggi til að réttlæta fjárfestingu í mannvirki af fullnægjandi gæðum. Hveragusa ehf. er tilbúið að semja um leigugjald í formi fasts árgjalds og hyggst sækja um starfsleyfi í kjölfar afnotasamnings.
Gögn málsins eru lögð fram til kynningar og umræðu. Nefndin fagnar framtakinu og leggur til að fundin verði staðsetning gusu utan lóðar við áframhaldandi vinnslu málsins.
Sigurður Einar kom aftur inn á fund kl.18:47.

6.Tillaga D-lista um viðhald á göngustígum

2605052

Lögð fram tillaga D-lista um viðhald á göngustígum sem vísað er til skipulags- og umhverfisnefndar frá fundi bæjarráðs þann 12. maí 2026.

Fulltrúar D-listans leggja til að farið verði í átak í uppbyggingu og viðhaldi á göngustígum í og við Hveragerði í sumar. Lagt er til að umhverfisfulltrúa verði falið að kortleggja hvar liggur mest á viðhaldi á stígum og að farið verði strax í að vinna að úrbótum.
Nefndin felur umhverfisfulltrúa að kortleggja viðhaldsþörf, gera kostnaðarmat og leggja fyrir næsta fund skipulags- og umhverfisnefndar.

7.Brattahlíð 2 - Umfangsflokkur 1

2605150

Lögð er fram til grenndarkynningar byggingarleyfisumsókn um nýtt gróðurhús á lóð Bröttuhlíðar 2. Gróðurhúsið er 36m x 8m að stærð og er staðsett vestan megin núverandi bygginga.

Umrætt svæði er á íbúðasvæði ÍB6 í aðalskipulagi þar sem fram kemur að enn séu garðyrkjustöðvar á tveimur lóðum. Ekkert deiliskipulag er í gildi og er umsóknin því grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Nefndi samþykkir að grenndarkynna byggingarleyfið skv. 2. mgr. 44 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bréf verða send til að vekja athygli á grenndarkynningunni í nálæg hús: Brattahlíð 1a, 1b, 3a, 3b og 4, Laufskóga 18, 21, 23, 25 og 27 auk Hverahlíðar 2.

8.Breytingar á þjónustu landsbyggðarstrætó

2606090

Lagt er fram bréf dags. 10. júní 2026 þar sem Vegagerðin tilkynnir um fyrirhugaða breytingar á þjónustu landsbyggðarvagna. Eru þær tilkomnar svo kostnaður vegna reksturs málaflokksins sé innan ramma á fjárhagsliðnum „Styrkir til almenningssamgangna“ í fjármálaáætlun árin 2026 -2031 sem Alþingi samþykkti þann 26. mars sl. Áætlað er að breytingarnar taki gildi haustið 2026. Alls verða breytingar gerðar á 5 af 2 5 leiðum í leiðakerfi landsbyggðastrætó um land allt.
Til kynningar. Nefndin harmar skerðingu á þjónustu og hvetur til samtals við Vegagerðina um framtíðarþjónustu almenningssamgangna á svæðinu. Nefndin leggur til að bæjarstjóra verði falið að hefja samtal við Vegagerðina um mögulega fleti á bættri þjónustu.

9.Heiðarbrún 47 - fyrirspurn um skjólvegg á lóðarmörkum

2508316

Lögð er fram að nýju fyrirspurn um skjólvegg á lóðarmörkum sem áður var tekin fyrir í skipulags- og umhverfisnefnd 5. september 2025 og í bæjarstjórn þann 11. september 2026. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum að fresta afgreiðslu málsins þar til nýjar reglur um skjól- og garðveggi hafa verið samþykktar sem hefur nú verið gert á fundi bæjarstjórnar þann 5. maí 2026.

Umbeðin girðing er 1,8m á hæð út að göngustíg á bæjarlandi sem er yfir heimildum skv. nýsamþykktum reglum.

Nefndin bendir fyrirspyrjanda á samþykktar reglur um girðingar, skjólveggi og smáhýsi með tilheyrandi leiðbeiningum sem eru á heimasíðu bæjarins. Fyrirspyrjanda er sérstaklega bent á lið nr. 5 þar sem fram kemur að hámarkshæð við þessar aðstæður er 1,5m og lið 10 í reglunum.

10.Borgarhraun 11 - umsókn um grindverk á lóðamörkum

2508317

Lögð er fram að nýju umsókn um grindverk á lóðarmörkum sem áður var tekin fyrir í skipulags- og umhverfisnefnd 5. september 2025 og í bæjarstjórn þann 11. september 2026. Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum að fresta afgreiðslu málsins þar til nýjar reglum um girðingar, skjólveggi og smáhýsi hafa verið samþykktar sem hefur nú verið gert á fundi bæjarstjórnar þann 12. maí 2026.

Umbeðið grindverk er 1,8m á hæð út að bæjarlandi sem er yfir hæð í nýsamþykktum reglum.
Nefndin hafnar umsókn um grindverk á lóðamörkum en bendir umsækjanda þess í stað á samþykktar reglur um girðingar, skjólveggi og smáhýsi með tilheyrandi leiðbeiningum sem eru á heimasíðu bæjarins. Umsækjanda er sérstaklega bent á lið nr. 5 þar sem fram kemur að hámarkshæð við þessar aðstæður er 1,5m og lið 10 í reglunum þar sem fram kemur að hægt er að sækja um undanþágu frá hámarkshæð með rökstuðningi.

11.Merkjalýsing Heiðmörk 68 og Heiðmörk 72

2605036

Lögð er fram merkjalýsing fyrir lóðamarkabreytingar Heiðmarkar 68 og 72 sem samþykktar voru á fundi skipulags- og mannvirkjanefndar þann 08. október 2020.
Til kynningar.

12.Ábendingar um hraðakstur á Sunnumörk

2606075

Innkomin ábending um hraðakstur á Sunnumörk með ósk um að gerðar verði úrbætur.
Nefndin fagnar erindinu og felur umhverfisfulltrúa að koma með tillögu til úrbóta og kostnaðarmat á næsta fund. Nefndin ásamt tækni- og umhverfissviði mun jafnframt taka til heildstæðrar skoðunar hvernig hægt er að vinna gegn hraðakstri í bænum.

13.Ábending um hraðakstur á Finnmörk

2605192

Innkomin ábending um hraðakstur á Finnmörk með ósk um að gerðar verði úrbætur.
Nefndin fagnar erindinu og felur umhverfisfulltrúa að koma með tillögu til úrbóta og kostnaðarmat á næsta fund. Nefndin ásamt tækni- og umhverfissviði mun jafnframt taka til heildstæðrar skoðunar hvernig hægt er að vinna gegn hraðakstri í bænum.

14.Ábendingar um hraðakstur á Hrauntungu

2604020

Innkomin ábending um hraðakstur á Hrauntungu með ósk um að gerðar verði úrbætur.
Nefndin fagnar erindinu og leggur til að vísa málinu til tækni- og umhverfissviðs til heildstæðrar skoðunar um hvernig hægt er að vinna gegn hraðakstri í bænum.

15.Bréf frá eigendum að Heiðmörk 68 a-d - stígur á baklóðum

2603221

Innkomið bréf frá eigendum að Heiðmörk 68a-d þar sem farið er fram á við bæjarfélagið að stígur á baklóðum raðhúsaíbúða verði gerður að bæjarlandi með tilheyrandi ábyrgð bæjarins á rekstri og þjónustu við stíginn.
Málið er lagt fram til umræðu. Nefndin frestar afgreiðslu málsins.

16.Garðaskoðun skipulags og umhverfisnefndar 2026

2606093

Lagt er til að haldinn verði fundur í sumar þar sem skipulags- og umhverfisnefnd fari venju samkvæmt í garðaskoðun og velji fegurstu garða Hveragerðisbæjar sem tilkynnt verður um val á Blómstrandi dögum í ágúst.
Nefndin leggur til að funda 14. júlí n.k.

17.Ábendingar um hraðakstur á Heiðmörk

2606100

Innkomin ábending um hraðakstur á Heiðmörk með ósk um að gerðar verði úrbætur.
Nefndin fagnar erindinu og felur umhverfisfulltrúa að koma með tillögu til úrbóta og kostnaðarmat á næsta fund. Nefndin ásamt tækni- og umhverfissviði mun jafnframt taka til heildstæðrar skoðunar hvernig hægt er að vinna gegn hraðakstri í bænum.

18.Ábending um hraðakstur og órækt við Heiðmörk 66

2606094

Innkomin ábending um órækt og hraðakstur við lóð bæjarins á Heiðmörk 66 með ósk um að gerðar verði úrbætur.
Nefndin fagnar erindinu og felur umhverfisfulltrúa að koma með tillögu til úrbóta og kostnaðarmat á næsta fund. Nefndin ásamt tækni- og umhverfissviði mun jafnframt taka til heildstæðrar skoðunar hvernig hægt er að vinna gegn hraðakstri í bænum. Lóð bæjarins er í hönnunarferli eins og kom fram á íbúafundi 24. febrúar s.l.

19.Skýrsla starfshóps um þjónustuíbúðir 60

2604093

Lögð er fram skýrsla starfshóps um félags- og þjónustukjarna fyrir 60 í Hveragerði. Skýrslan var tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar þann 12. maí 2026 þar sem henni var vísað til vinnslu í skipulags- og umhverfisnefnd.
Nefndin fagnar skýrslunni og felur skipulagsfulltrúa að gera minnisblað um staðarval fyrirhugaðrar uppbyggingar og leggja fyrir skipulags- og umhverfisnefnd þegar það liggur fyrir.

20.Skilti fyrir starfsemi í Hveragerðisbæ - gjaldskrá

2606110

Lagt er fram minnisblað umhverfisfulltrúa dags. 18. júní 2026 með tillögu að gjaldskrá vegna skiltis fyrir starfsemi sem er við innkomu í bæinn.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að gjaldskrá eins og hún er lögð fram í minnisblaði umhverfisfulltrúa dags. 18. júní 2026.

21.Sorphirða

2606044

Lagður er fram tölvupóstur frá Golfklúbbi Hveragerðis frá 4. júní 2026 þar sem farið er fram á að bærinn standi að sorphirðu við klúbbinn.
Nefndin leggur til að bæjarráð vísi beiðninni til skoðunar við gerð þjónustusamnings við Golfklúbb Hveragerðis.
Fundargerð upplesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 20:45.

Getum við bætt efni síðunnar?