Skipulags- og umhverfisnefnd
Dagskrá
Arnar Ingi setti fund og leitaði eftir athugasemdum við fundarboði. Engar athugasemdir voru gerðar.
Einar vék af fundi kl. 17:05.
1.Deiliskipulag við Varmá - ósk um lóðaúthlutun og breytingu á deiliskipulagi fyrir gusu
2604011
Umsækjandi óskar eftir breytingu á deiliskipulagi Varmár, sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 12. maí 2021 og birt í B-deild þann 19. júlí 2021, til þess að skilgreina nýja lóð fyrir starfsemi gusu (sauna). Umsækjandi leggur áherslu á að nálægðin við Baulu og Varmá sé lykilatriði þar sem að kæling í náttúrulegu köldu vatni Varmár er mikilvægur hluti af upplifuninni. Gert er ráð fyrir aðkomu að starfseminni um núverandi vegslóða. Stærð saunahúss, skiptiaðstöðu og palla er áformuð um 35-40 m2 sem mun skv. umsókn standa á steyptum grunni.
Nefndin fagnar áhuga umsækjanda á að draga íbúa og gesti að baðstaðnum Baulu en leggur til við bæjarstjórn að hafna umsækjendum um að breyta deiliskipulagi en bjóða umsækjendum til viðræðna um hugsanleg afnot af landi bæjarins við baðstaðinn Baulu og fyrirkomulag á uppsetningu gusu.
Einar kom aftur inn á fund kl. 17:16.
2.Gróðurmörk 1,3 og 5 - ósk um gerð deiliskipulags
2604010
Umsækjandi, sem er lóðarhafi Gróðurmarkar 1, 3 og 5 og eigandi mannvirkja sem þar standa, óskar eftir því að deiliskipulagsvinna sem nú er hafin á Gróðurmörk 7, 7a, 9 og 11 taki einnig til Gróðumerkur 1 - 5 þannig að allt svæðið verði ein skipulagsleg heild og sömu forsendur nái yfir allt svæðið. Óskar lóðarhafi jafnframt eftir frekara samtali varðandi aðkomu þeirra að skipulagsvinnunni.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að gengið verði til samninga við umsækjanda um að útvíkka deiliskipulagsvinnu Gróðurmarkar 7, 7a, 9 og 11 þannig að hún nái einnig til lóðanna 1, 3 og 5 og fleiri atriða.
3.Reglur um girðingar, skjólveggi og smáhýsi
2410186
Lögð er fram tillaga um uppfærðar reglur Hveragerðisbæjar um girðingar, skjólveggi og smáhýsi dags. í maí 2026, unnar af Landform landslagsarkitektum að beiðni Hveragerðisbæjar.
Aðdragandi málsins hefur verið langur. Á fundi bæjarstjórnar þann 11. apríl 2024 beindi bæjarstjórn því til skipulags- og umhverfisnefndar að taka reglur um smáhýsi, girðingar og skjólveggi frá 14. júlí 2020 til endurskoðunar með það að markmiði að rýmka þær en þó með teknu tilliti til öryggis og umhverfis. Hefur ítarlegt samráð átt sér stað við bæjarbúa þar sem reglurnar ásamt leiðbeiningarriti hafa verið kynntar á heimasíðu bæjarins sem og á opnum íbúafundi sem haldinn var þann 24. febrúar s.l.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja reglur um girðingar skjólveggi og smáhýsi dags. í maí 2026.
4.Minnisblað garðyrkjustjóra vegna ærslabelgs
2604172
Lagt er fram minnisblað garðyrkjustjóra um nýjan ærslabelg.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja kaup á nýjum ærslabelg af stærri gerðinni skv. minnisblaðinu og staðsetja í Smágörðum við Breiðumörk
5.Beiðni um stækkun á lóð Laufskóga 11
2603184
Eigendur Laufskóga 11 vilja athuga þann möguleika að fá úthlutað um helming eða ca 220 m2 af lóðarskika sem liggur milli baklóða Laufskóga 11 og Dynskóga 12. Hugmyndin er að nýta lóðina fyrst og fremst til gróðurræktunar og mögulega koma fyrir litlu gróðurhúsi.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að hafna erindinu í ljósi áforma um að nýta svæðið með öðrum hætti. Bæjarstjórn samþykkti þann 13. júní 2024 að nýta svæðið sem kallað er Leynilundur sem samverusvæði fjölskyldunnar og leiksvæði sem hentar svæðinu í ljósi, aðgengis, skipulags og samtals við íbúa.
6.Breiðamörk 18 - ósk um fjölgun bílastæða
2603119
Rekstraraðili tannlæknastofunnar að Breiðumörk 18 óskar eftir leyfi til að útbúa þrjú almenn bílastæði og eitt bílastæði fyrir hreyfihamlaða á norðurhlið lóðar þar sem þau munu tengjast bílastæðum bæjarskrifstofunnar. Jafnframt yrði lagður rampur fyrir hjólastóla frá vesturhlið bílastæðanna ásamt tröppum og göngustíg við norðurhlið hússins og innan lóðar Breiðamerkur 18.
Markmið framkvæmdarinnar að sögn umsækjenda er að bæta aðgengi og öryggi við eignina sérstaklega fyrir hreyfihamlaða, jafnframt því að fjölga bílastæðum á svæðinu. Stefnt verður að því að hafa bílastæðin, rampinn og göngustíginn með hitalögnum.
Ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir lóðina.

Nefndin leggur við bæjarstjórn að samþykkja sem leigutaki að kvöð um aðgengi að bílastæðum verði sett á lóð Breiðumarkar 20. Nefndin leggur til við umsækjanda að tryggja samþykki eiganda fasteignar að Breiðumörk 20 fyrir því að sett verði kvöð á hans lóð fyrir aðkomu að bílastæðum á austanverða lóð Breiðumarkar 18.
Umsókn eiganda Breiðumarkar 18 verður grenndarkynnt þegar uppdrættir liggja fyrir. Bent er á að fjöldi bílastæða skuli vera í samræmi við samþykkta bíla- og hjólastæðastefnu Hveragerðisbæjar.
Umsókn eiganda Breiðumarkar 18 verður grenndarkynnt þegar uppdrættir liggja fyrir. Bent er á að fjöldi bílastæða skuli vera í samræmi við samþykkta bíla- og hjólastæðastefnu Hveragerðisbæjar.
7.Ósk um að setja upp skilti við innkeyrslu að hesthúsabyggð á Vorsabæjarvöllum
2604169
Rekstraraðili hestaleigu sem starfrækt er í hesthúsabyggð á Vorsabæjarvöllum óskar eftir því að setja upp skilti við hesthúsahverfið í Reykjadal með logo fyrirtækisins Icee - Icelandic Equestrian Experience og vefslóð. Skiltið yrði hægra megin við aðkomuveg inn í hverfið við Breiðumörk.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja skilti að stærð 1m x 1m á landi bæjarins þar sem það er vegna stærðar ekki leyfisskylt skv. byggingarreglugerð. Skiltið verði staðsett í samráði við umhverfisfulltrúa.
8.Ósk eftir afnotum af svæði við hesthúsabyggð að Vorsabæjarvöllum
2604170
Rekstraraðili hestaleigu sem starfrækt er í hesthúsabyggð á Vorsabæjarvöllum óskar eftir afnotum af svæði við hesthúsabyggð að Vorsabæjarvöllum.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að hafna erindinu enda er umrætt svæði ætlað undir lóð fyrir hesthús í fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu sem bíður samþykktar.
Arnar Ingi vék af fundi kl. 18:03.
9.Tröllatunga 52- byggingarleyfi
2604174
Lögð er fram drög að umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á einni hæð við Tröllatungu 52 með kjallara undir hluta hæðarinnar. Í gildi er deiliskipulag Kambalands sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 11. nóvember 2021 og birt í B-deild 20. desember 2021.
Skv. gildandi deiliskipulagi er heimild til byggingar kjallara undir hluta íbúðarhúsa ef hæðarmunur á lóð er 2m eða meiri. Í tilfelli Tröllatungu 52 er hæðarmunur lóðar 1,65m og uppfyllir lóðin þar með ekki ákvæði gildandi deiliskipulags um heimild til kjallara. Í greinargerð hönnuðar kemur fram að meginhlið kjallarahæðar verði ekki niðurgrafin að hluta til eða um 12m samtals af austur- og suðurhlið kjallarans. Akstursrampur yrði steyptur og hugað verður af fallvörnum þar sem það á við. Ekki er grafið frá hlið sem snýr að göngustíg og opnu svæði.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja óveruleg frávik frá gildandi deiliskipulagi skv. 5.8.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og gefa heimild til kjallara þó að hæðarmunur sé minni en 2m á lóðinni þar sem hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Arnar Ingi kom aftur inn á fund kl. 18:09.
10.Hönnun skólphreinsistöðvar - framtíðaráform
2604168
Umhverfisfulltrúi gerir grein fyrir framtíðaráformum skólphreinistöðvar með tilliti til stærðar og stækkunarmöguleika.
Hönnunarforsendur nýrrar hreinsistöðvar miða við að ekki þurfi að fara í meiriháttar uppfærslu eða endurnýjun næstu 20 ár eða svo. Það þýðir þó ekki að ekkert þurfi að gera á þeim tíma en reynsla rekstraraðila erlendis er að einhverrar endurnýjunar er þörf að meðaltali á 10 ára fresti. Samkvæmt miðgildisspá um fjölgun íbúa Hveragerðisbæjar gæti lífrænt álag orðið milli 11.000 og 12.000 persónueiningar eftir 20 ár. Í svona spám er alltaf töluverð óvissa og einnig eru áætlanir um afkastagetu hreinsistöðva aldrei fullkomlega nákvæmar. Mikilvægt er að horfa til þess að allt Árhólmasvæðið verður á aðskildu kerfi en þar er í byggingu hreinsistöð sem gæti orðið allt að 1000 persónueiningar þegar fullri getu er náð.
Heildargeta kerfisins verður að öllu óbreyttu um 11.000 persónueiningar þegar framkvæmdum lýkur. Það er því ljóst að talsvert svigrúm er til vaxtar miðað við þessar áætlanir. Samt sem áður er mögulegt að auka afköst stækkaðrar hreinsistöðvar þar sem gert er ráð fyrir enn frekari búnaði til aukinna afkasta í forhönnun hennar.

11.Samstarfssamningur um skógræktar- og útivistarsvæði í Hveragerði
2604171
Hveragerðisbær og Skógræktarfélag Hveragerðis skuldbinda sig með samningi til samstarfs um skógræktar- og útivistarsvæði í Hveragerði. Sameiginlegt markmið aðila er að standa vörð um, efla og bæta skógivaxin útivistarsvæði í sveitarfélaginu.
Með samningnum er leitast við að styrkja hlutverk Skógræktarfélags Hveragerðis við umsjón og umhirðu á skógræktarsvæðum í sveitarfélaginu þar sem unnið er að landbótum, skógrækt og bættri útivistaraðstöðu. Skógræktin kemur öllum íbúum sveitarfélagsins til góða, bætir búsetuskilyrði og eykur fjölbreytni umhverfisins.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
12.Beiðni um umsögn um deiliskipulag vegna tengivirkis á Völlum
2604173
Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa og umhverfisfulltrúa dags. 30. apríl 2026 vegna tillögu að deiliskipulagi á landsvæði í Ölfusi þar sem spennistöð Landsnets er að finna. Um er að ræða lóðirnar Vellir spennistöð L176227 og Vellir lóð L195035. Markmið deiliskipulagsbreytingar er að heimila Landsneti að stækka núverandi spennistöð til þess að auka flutningsgetu og afhendingaröryggi raforku á svæðinu.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja umsögn skipulagsfulltrúa og umhverfisfulltrúa sem umsögn Hveragerðisbæjar við auglýstu deiliskipulagi.
13.Skýrslur um hraunvá
2604099
Lagðar eru fram skýrslur Veðurstofu Íslands um Hraunvá á Reykjanesskaga - Langtímahættumat og Hraunvá á höfuðborgarsvæðinu - langtímahættumat. Veðurstofan hefur unnið að gerð skýrslnanna í kjölfar eldsumbrota sem hófust á Reykjanesskaga árið 2021. Tilgangurinn er að staðsetja útsett eða berskjölduð svæði, en ekki að reyna að sjá fyrir nákvæma framvindu næsta mögulega atburðar. Niðurstöður sýna hvar líkur eru á gosupptökum og hvar áhrifa hraunflæðis getur orðið vart og þær eru því mikilvægar í skipulagsvinnu og við gerð og mótun viðbragðsáætlana og mótvægisaðgerða.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 18:30.
Getum við bætt efni síðunnar?