Skipulags- og umhverfisnefnd
Dagskrá
Arnar Ingi setti fund og leitaði eftir athugasemdum við fundarboð. Engar athugasemdir voru gerðar.
1.Umsókn um styrk til húsverndar
2603129
Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar samþykkti á fundi sínum þann 12. febrúar s.l. tillögu að reglum um styrki til húsverndar og var í kjölfarið auglýst eftir umsóknum.
Í frétt sem fylgdi málinu á heimasíðu bæjarins kom fram að Hveragerðisbær býr yfir sérstökum byggingararfi sem endurspeglar sögu bæjarins, jarðhitanýtingu, frumkvöðlastarf og þróun samfélagsins frá upphafi byggðar. Ennfremur kom fram að markmið með veitingu styrkja til húsverndar væri að stuðla að vandaðri endurgerð og viðhaldi og hvetja húseigendur til að taka þátt í sameiginlegri ábyrgð á vernd byggingararfs Hveragerðisbæjar.
Ein umsókn barst um styrk til húsverndar fyrir Blómaborg, sem stendur við Breiðumörk 14. Sótt er um styrk til þess að færa skilti til upprunalegra horfs en rekin hefur verið verslun og gróðurhús í húsinu frá árinu 1950.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að veita umsækjanda styrk til húsverndar á Breiðumörk 14 í samræmi við umsókn um að færa skilti í upprunalegt horf.
2.Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar 2026
2602110
Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar eru veitt árlega fyrirtæki, einstaklingi eða félagasamtökum sem sýnt hefur sérstakt frumkvæði í umhverfismálum. Verðlaunin verða afhent á sumardaginn fyrsta í tengslum við opið hús Garðyrkjuskólans á Reykjum (FSU).
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 17:30.
Getum við bætt efni síðunnar?