Skipulags- og umhverfisnefnd
Dagskrá
Arnar Ingi setti fund kl. 18:03 og leitaði eftir athugasemdum við fundarboð. Engar komu fram.
1.Heiðmörk 30-36, Grundarreitur - nýtt deiliskipulag
2510173
Lögð er fram tillaga að nýju deiliskipulagi Grundarreitar að Heiðmörk 30-36 ásamt greinargerð, skýringaruppdrætti og skuggavarpi dags. í mars 2026 unnu af ASK arkitektum. Deiliskipulagssvæðið er íbúðasvæði í gildandi aðalskipulagi um 1,15 ha að flatarmáli og er í vestur afmarkað af Bláskógum, í austur af Litlumörk, í norður af Heiðmörk og í suður af Þelamörk. Nýtingarhlutfall er 0,5 og gert er ráð fyrir 80 íbúðum af mismunandi stærð. Heimild er til niðurrifs núverandi bygginga.
Helstu markmið með nýju deiliskipulagi eru að tryggja að uppbygging íbúðabyggðar falli vel að núverandi byggð, byggðarmynstri og skipulagi líkt og lagt upp er með í arkitektúrstefnu í Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037 að skapa heilsteypt, hlýlegt svæði/hverfi með notalegu yfirbragði, að fjölbreytni sé í íbúðastærðum, að nýta svæðið vel en verðmæti svæðisins liggur m.a. í nálægð við miðbæ, skóla og náttúru. Að sýna sérkennum og sögu svæðisins virðingu, að móta byggð sem er til þess fallin að stuðla að góðu mannlífi og sambúð ólíkra hópa, að tryggja góð tengsl við umhverfið með fyrirkomulagi stíga, gatna, inngarða og með ofanvatnslausnum.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja í auglýsingu deiliskipulag Grundarreitar skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að teknu tilliti til athugasemda sem fram koma í minnisblaði nefndarinnar frá 31. mars 2026. Leggur nefndin einnig til að haldinn verði opinn íbúafundur samhliða auglýstum athugasemdafresti og að gatnahönnun nágrennis taki mið af breyttum aðstæðum m.t.t yfirsýnar og flæðis.
Brynja fór af fund kl. 18:06.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 18:30.
Getum við bætt efni síðunnar?