Fara í efni

Skipulags- og umhverfisnefnd

28. fundur 24. mars 2026 kl. 17:00 - 18:00 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Arnar Ingi Ingólfsson formaður
  • Kristján Björnsson varaformaður
  • Thelma Rún Runólfsdóttir aðalmaður
  • Brynja Hrafnkelsdóttir aðalmaður
  • Árni Þór Steinarsson Busk varamaður
Starfsmenn
  • Hildur Gunnarsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Höskuldur Þorbjarnarson Umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði: Hildur Gunnarsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá
Arnar Ingi setti fund og leitaði eftir athugasemdum við fundarboð. Engar komu fram.

1.Mýrarsel 9 - umsagnarbeiðni við nýtt deiliskipulag

2603118

Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. mars 2026 vegna beiðni um umsögn vegna auglýstrar deiliskipulagsbreytingar á lóð Mýrarsels 9 í Ölfusi.

Deiliskipulagsbreytingin leggur til breytingu á nýtingu 2,67 ha lóðar þannig að í stað þess að reisa allt að 6 gróðurhús og 2 íbúðarhús er lóðinni skipt upp í 5 lóðir þar sem heimilt er að reisa einbýlishús með bílskúr og gróðurhúsi / vinnustofu á hverri lóð. Stærð lóða er um 0,53 ha og nýtingarhlutfall 0,15. Heimild er fyrir fleiri húsum á lóðunum.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja umsögn skipulagsfulltrúa um deiliskipulagsbreytingu lóðarinnar við Mýrarsel 9 dags. 20. mars 2026 sem umsögn Hveragerðisbæjar og senda inn á málið í Skipulagsgátt.

2.Göngustígur við Heiðarbrún 1 - aðgengismál

2603117

Lagður fram tölvupóstur Ásthildar Maríu Árnadóttur frá 10. mars 2026 þar sem hún lýsir erfiðum aðstæðum á gangstétt við Heiðarbrún 1. Gangstétt endi skyndilega með háum kantsteini og byrji aftur stuttu síðar með öðrum háum kantsteini (mjór kantsteinn á milli). Segir hún aðstæður geta skapað hættu fyrir fólk í hjólastólum, á reiðhjólum, með barnavagna og gangandi vegfarendur. Þar sem þetta er á gönguleið við leikskóla væri æskilegt að skoða þetta sem fyrst.

Þann 2. desember 2025 var tillaga að frumhönnun Þela- og Sunnumerkur við Undraland vegna umferðaröryggismála tekin fyrir og kynnt fyrir skipulags- og umhverfisnefnd. Verður hönnunin lögð til grundvallar að því að leysa málið.
Nefndin þakkar ábendingu. Umrætt mál hefur áður verið til umræðu í skipulags- og umhverfisnefnd og leggur nefndin til við bæjarstjórn að farið verði í úrbætur á þessu svæði í samræmi við tillögur ráðgjafa VSB. Sú tillaga felur í sér þrengingu á götu, óbrotinn göngustíg, hraðahindrun og gangbraut.

3.Menningararfsgreining í Hveragerðisbæ

2603121

Lagt fram til kynningar tilboð Söru Løve Daðadóttur og samstarfsfélaga um gerð menningararfsgreiningar fyrir Hveragerðisbæ ásamt afrit af umsókn um styrk til Nýsköpunarsjóðs námsmanna til áframhaldandi vinnu við ofangreint. Einnig er lagt fram til kynningar dæmi um menningararfsgreiningu fyrir sveitarfélagið Syddjurs í Danmörku.
Til kynningar.

4.Rannsókn um staðargæði tveggja íbúðarhverfa í Hveragerði eftir Ásdísi Hlökk Theódórsdóttur

2603120

Ásdís Hlökk Theódórsdóttir aðjúnkt í skipulagsfræði við LBHÍ vinnur að rannsókn á staðargæðum nýlegra íbúðarhverfa á Íslandi. Hluti þeirrar rannsóknar felst í úttekt sem framkvæmd var árið 2024 á staðargæðum 23ja nýlegra íbúðarhverfa með aðferðafræði sem þróuð var í Englandi og hefur verið beitt til að meta staðargæði íbúðarhverfa þar í landi en staðfærð fyrir íslenskar aðstæður.

Helstu niðurstöður úttektarinnar voru kynntar á Skipulagsdeginum 2025 og voru tvö hverfi í Hveragerði skoðuð; „Vestan Grænumerkur“ og „Austan Grænumerkur“. Óskaði skipulagsfulltrúi í kjölfarið eftir að fá nánari upplýsingar um niðurstöður

úttektarinnar varðandi þau hverfi. Sendi Ásdís Hlökk almennar upplýsingar um staðargæðaúttektina og niðurstöður hennar varðandi hverfin tvö sérstaklega.



Til kynningar.

5.Dynskógar 22 - Umfangsflokkur 2

2405025

Á fundi skipulags- og umhverfisnefndar þann 3. febrúar 2026 var lögð fram til grenndarkynningar umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun Dynskóga 22. Grenndarkynning fór fram frá 5. febrúar til 6. mars s.l. á Skipulagsgátt og með bréfi til lóðarhafa nálægra lóða. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin vísar málinu til áframhaldandi afgreiðslu hjá byggingarfulltrúa.
Fundargerð upplesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 18:00.

Getum við bætt efni síðunnar?