Skipulags- og umhverfisnefnd
Dagskrá
Arnar Ingi setti fund og leitaði eftir athugasemdum við fundarboð sem engar voru. Bar Arnar upp til samþykkis tillögu um að setja inn með afbrigðum mál deiliskipulagsbreytingar hreinsistöðvar í landi Vorsabæjar vegna Þorlákshafnarlínu. Var tillagan samþykkt sjá lið nr. 2.
1.Jólaskraut innkaup
2601078
Lagt fram minnisblað Árnýjar Guðfinnsdóttur garðyrkjustjóra varðandi kaup á stauraskrauti á ljósastaura Hveragerðisbæjar. Árný kynnir tillögu um kaup á nýju stauraskrauti til þess að setja upp á ljósastaura meðfram Breiðumörk fyrir næstu jól en gert er ráð fyrir slíku í fjárhagsáætlun.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að kaup á jólaskrauti á ljósastaura í samræmi við tillögu í minnisblaði garðyrkjustjóra.
Sigurður Einar kom inn á fund kl. 17:32
2.Deiliskipulag hreinsistöðvar í landi Vorsbæjar - deiliskipulagsbreyting vegna Þorlákshafnarlínu 2
2603023
Lögð er fram deiliskipulagsbreyting á deiliskipulagi hreinsistöðvar í landi Vorsabæjar vegna Þorlákshafnarlínu 2 (TO2). Deiliskipulag hreinsistöðvar var fyrst samþykkt í bæjarstjórn 8. mars 2001, hafa síðan verið gerðar tvær deiliskipulagsbreytingar vegna stækkun hreinsistöðvarinnar, sú seinni var samþykkt í bæjarstjórn 12. mars 2020.
Markmið deiliskipulagsbreytingarinnar er að heimila legu Þorlákshafnarlínu 2 (TO2, 132 kV jarðstrengur) frá tengivirki austan Varmár að Þorlákshöfn og mun línan (jarðstrengur) liggja um útivistarsvæði norðan við hreinsistöðina og áfram norðan við athafnasvæði við Vorsabæ og svo áfram meðfram Hringvegi og til suðurs með Þorlákshafnarvegi. Í gildandi dsk. er sýnt hundasleppisvæði og göngustígur á útivistarsvæðinu sem lega línunnar fer um. Breytingin varðar á engan hátt starfsemi hreinsistöðvar né mannvirki innan þeirrar lóðar.
Markmið deiliskipulagsbreytingarinnar er að heimila legu Þorlákshafnarlínu 2 (TO2, 132 kV jarðstrengur) frá tengivirki austan Varmár að Þorlákshöfn og mun línan (jarðstrengur) liggja um útivistarsvæði norðan við hreinsistöðina og áfram norðan við athafnasvæði við Vorsabæ og svo áfram meðfram Hringvegi og til suðurs með Þorlákshafnarvegi. Í gildandi dsk. er sýnt hundasleppisvæði og göngustígur á útivistarsvæðinu sem lega línunnar fer um. Breytingin varðar á engan hátt starfsemi hreinsistöðvar né mannvirki innan þeirrar lóðar.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
3.Leiðbeiningar Vegagerðarinnar um samgöngumat
2602109
Vegagerðin vekur með tölvupósti dags. 4. febrúar 2026 athygli á nýútgefnum leiðbeiningum um gerð samgöngumats. Samgöngumat er mikilvægt fyrir Vegagerðina svo mögulegt sé að kortleggja áform sveitarfélaga með tilliti til áhrifa þeirra á umferð og samgönguinnviði. Með samgöngumati fá sveitarfélög jafnframt betri mynd af áhrifum uppbyggingar á samgöngur innan viðkomandi sveitarfélags. Æskilegt er að vinna samgöngumat eins snemma, í undirbúningi framkvæmda eða uppbyggingar, og kostur er á enda nýtist sú vinna á síðari stigum.
Til kynningar.
4.Grásteinn stækkun íbúðasvæðis - umsögn vegna aðalskipulagsbreytingar
2602087
Lögð er fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2026 vegna beiðni um umsögn vegna óverulegrar aðalskipulagsbreytingar á landnotkunarreit ÍB20 í Ölfusi. Aðalskipulagsbreytingin gerir ráð fyrir að fella um 1 ha lands sem hefur í verið skilgreindur undir landbúnaðarbyggð í íbúðasvæði sem það liggur fast upp við á tvo vegu en landbúnaðarjörð og aðkomuveg á aðra vegu. Liggur svæðið einnig upp að Varmá og sveitarfélagsmörkum til Hveragerðisbæjar. Fjölgun íbúða er úr 25 í 35. Samhliða aðalskipulagsbreytingu er auglýst deiliskipulagsbreyting í Skipulagsgátt. Deiliskipulagsbreyting sýnir 12 nýjar lóðir þar sem ýmist er heimilt að byggja einbýlishús eða tvíbýlishús, eða allt að 21 íbúð. Fyrir eru byggðar 17 íbúðir.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2026 sem umsögn Hveragerðisbæjar vegna aðalskipulagsbreytingar í sveitarfélaginu Ölfusi með athugasemdum nefndarinnar um skólphreinsistöð.
5.Áskorun ungmennaráðs vegna ruslatunna í bænum
2511112
Lögð er fram að nýju áskorun ungmennaráðs frá fundi þess þann 25. nóvember 2025. Áskorunin var til bæjaryfirvalda um að fjölga ruslatunnum í bænum og var tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar þann 11. desember 2025. Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að láta kanna möguleika á fjölgun sorpíláta í samræmi við áskorun ungmennaráðs og vísaði málinu til umræðu í skipulags- og umhverfisnefnd. Var málið tekið fyrir á fundi nefndarinnar þann 6. janúar 2026 þar sem lagt var til að kortasjá bæjarins yrði uppfærð með þekju fyrir ruslatunnur bæjarins, sem hefur nú verið gert, og að málið yrði tekið upp á nýju að því loknu.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að fela umhverfisfulltrúa í samráði við bæjarstjóra að fjölga ruslatunnum.
6.Umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar 2026
2602110
Umræða um umhverfisverðlaun Hveragerðisbæjar sem veitt verða að venju á sumardaginn fyrsta.
Til umræðu.
7.Minnisblað vegna skjól- og garðveggja
2410186
Lögð er fram fundargerð frá íbúafundi um vorverkin sem haldinn var á Hótel Örk þriðjudaginn 24. febrúar s.l. Fundurinn var vel sóttur og kynnti Oddur Hermannsson landslagsarkitekt tillögu að uppfærslu á reglum um girðingar, skjólveggi og smáhýsi sem hafa verið í gildi síðan árið 2020. Reglunum fylgja skýringarmyndir og leiðbeiningar svo að reglur um lóðamál og skjólgirðingar verði auðskildari og geri húseigendum og starfsfólki bæjarins auðveldar með að svara fyrirspurnum um lóðar- og byggingarmál.
Til kynningar. Nefndin leggur til að fela skipulagsfulltrúa að rýna reglurnar og taka fyrir að nýju til kynningar.
8.Heiðmörk 66 - lóðarhönnun fyrir fjölbreyttan hóp notenda
2505162
Lögð er fram fundargerð frá íbúafundi um vorverkin sem haldinn var á Hótel Örk þriðjudaginn 24. febrúar s.l. Fundurinn var vel sóttur og kynnti Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt frumdrög í vinnslu að lóðarhönnun fyrir leiksvæði á lóð bæjarins að Heiðmörk 66. Leikvöllurinn er opinn öllum og er hugsaður fyrir fjölbreyttan hóp notenda með áherslu á eldri íbúa og ung börn. Dagný kynnti fyrirliggjandi deiliskipulag, framkvæmdina sem er að hluta til ekki í samræmi við deiliskipulagið og tillögur sínar að hönnun lóðarinnar. Bréf voru send í öll raðhús sem eru hluti af deiliskipulagsreitnum til þess að vekja athygli á fundinum.
Til kynningar.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 19:00.
Getum við bætt efni síðunnar?