Skipulags- og umhverfisnefnd
Dagskrá
Arnar Ingi setti fund og leitaði eftir athugasemdum um fundarboð. Engar komu fram. Sigurður Einar Guðjónsson boðaði forföll og var Árni Þór Steinarsson Busk varamaður boðaður í hans stað. Árni þurfti einnig að boða forföll vegna veikinda.
1.Gjaldskrár Hveragerðisbæjar 2026 - vegna sorphirðu
2511029
Lögð er fram til tillaga að gjaldskrá fyrir djúpgáma og 1100 lítra sorpílát til breytingar á gjaldskrá Hveragerðisbæjar fyrir sorphirðu.
Djúpgámar fyrir sorp eru á íbúðarlóð í Lindarbrún. Fyrirséð er að djúpgámum á eftir að fjölga í bænum með nýrri íbúðabyggð og mikilvægt er að gjaldskrá vegna sorphirðu endurspegli það.
Djúpgámar fyrir sorp eru á íbúðarlóð í Lindarbrún. Fyrirséð er að djúpgámum á eftir að fjölga í bænum með nýrri íbúðabyggð og mikilvægt er að gjaldskrá vegna sorphirðu endurspegli það.
Nefnin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á gjaldskrá fyrir sorphirðu.
2.Skilti
2403774
Lögð er fram til grenndarkynningar byggingarleyfisumsókn um bæjarskilti fyrir Hveragerðisbæ. Bæjarskiltið er staðsett við Hringveg innan við bæjarmörk í Kömbum.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja uppsetningu bæjarskiltis, með fyrirvara um umsögn Vegagerðarinnar. Falla má frá grenndarkynningu í samræmi við 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga þar sem leyfisskyld framkvæmd varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins.
3.Deiliskipulag Grænumerkur 10 Heilsustofnun - deiliskipulagsbreyting vegna sólskála við Lækjarbrún
2411008
Lögð er fram eftir auglýsingu deiliskipulagsbreyting vegna Grænumerkur 10 Heilsustofnun - deiliskipulagsbreyting vegna sólskála við Lækjarbrún 1 - 43. Markmið breytingarinnar er að heimila byggingu sólskála á sérafnotareitum við raðhúsin. Skilmálar eru um samræmda útfærslu, umfang og litaval. Á fundi bæjarstjórnar þann 12. desember 2024 var tillagan samþykkt í auglýsingu og í kjölfarið birt í Skipulagsgátt. Barst umsögn frá Veitum dags. 23. desember 2024. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 16. desember 2025 til 27. janúar 2026 í Lögbirtingablaðinu og bréf send til fasteignaeigenda sem breytingin nær til. Bárust engar athugasemdir.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna óbreytta.
4.Deiliskipulagsbreyting ferðaþjónustusvæðis við Árhólma í Hveragerði - breyting vegna gistiskála
2601154
Lögð er fram tillaga að deiliskipulagsbreytingu ásamt uppfærðri greinargerð vegna ferðaþjónustusvæðis við Árhólma í Hveragerði vegna gistiskála. Með breytingu er hugtakinu gistiskáli bætt við fyrra heiti, smáhýsi, þar sem orðið gistiskáli lýsir betur fyrirhugaðri notkun. Hluti byggingarmagns fyrir gistiskála er fært á milli þegar skilgreindra lóða fyrir gistiskála, frá A10 til A9. Byggingarmagn A9 eykst um 150 fermetra úr 700 m2 í 850 m2 og byggingarmagn A10 lækkar um 150 fermetra úr 700 m2 í 550 m2. Skilmálar um stærðir og útlit eru óbreyttar. Ekki er um aðrar breytingar að ræða.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin víkur ekki frá notkun, heildarnýtingarhlutfalli, útliti og formi viðkomandi svæðis.
5.Dynskógar 22 - Umfangsflokkur 2 - grenndarkynning
2405025
Lögð er fram til grenndarkynningar umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun Dynskóga 22. Núverandi einbýlishús er stækkað. Gólfplata og veggur við lóðarmörk heldur sér annað er endurbyggt. Gólfplatan er stækkuð til norðausturs, suðausturs og suðvesturs og myndar u-form í kringum inngarð með stórum hlyn. Stærð fyrir stækkun 66,8 m2. Stærð eftir stækkun 190 m2, nýtingarhlutfall lóðar eftir stækkun 0,15. Tillaga að samskonar stækkun var grenndarkynnt og samþykkt árið 2023 en rann út á tíma. Er grenndarkynning því endurtekin.
Dynskógar 22 eru á íbúðasvæði ÍB7. Reiturinn nær yfir elsta hluta bæjarins og á honum er hverfisvernd. Möguleiki er á að stækka hús og fjölga, einkum á baklóðum. Nýtingarhlutfall 0,3-0,4 að hámarki.
Dynskógar 22 eru á íbúðasvæði ÍB7. Reiturinn nær yfir elsta hluta bæjarins og á honum er hverfisvernd. Möguleiki er á að stækka hús og fjölga, einkum á baklóðum. Nýtingarhlutfall 0,3-0,4 að hámarki.
Nefndin samþykkir að grenndrakynna byggingarleyfið í samræmi við 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynningin nær til Dynskóga 18, 20, 24 og 26 og Laufskóga 21,23 og 25.
6.Tillaga að húsverndarsjóði
2503046
Lögð eru fram til kynningar og umsagnar drög að reglum um styrki til húsverndar. Á fundi bæjarráðs þann 15. janúar 2026 samþykkti meirihluti að óska eftir umsögnum menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar og skipulags- og umhverfisnefndar um drög að reglum um styrki til húsverndar.
Nefndin fagnar tillögu bæjarstjórnar að stofnun húsverndarsjóðs. Umsögnin er eftirfarandi: Nefndin telur að hámarksupphæð styrkveitinga eigi að koma fram í reglum um styrki til húsverndar. Einnig leggur nefndin til að hugtakið vísindalegt gildi sem kemur fyrir í lið a verði fellt út úr reglunum.
7.Minnisblað um leikvelli
2509047
Lagt er fram minnisblað skipulagsfulltrúa um leikvelli. Margir og fjölbreyttir leikvellir eru innan bæjarmarka Hveragerðisbæjar s.s hefðbundin leiksvæði, þemavellir, andrými og hverfisgarðar. Mikilvægt er að bæjarbúar þekki nöfn leikvallanna og nýti sér þá til leikja og skemmtunar.
Nefndin leggur til að fela umhverfisfulltrúa að gera gangskör í að merkja leikvellina með skiltum og setja fitjur yfir leikveilli inn á kortasjá bæjarins.
8.Heiðmörk 66 - lóðarhönnun fyrir fjölbreyttan hóp notenda
2505162
Heiðmörk 66 er lóð í eigu Hveragerðisbæjar sem skilgreind er fyrir leiksvæði skv. gildandi deiliskipulagi fyrir Heiðmörk - Þelamörk sem samþykkt var í bæjarstjórn í nóvember 2007. Unnið er að lóðarhönnun fyrir fjölbreyttan hóp notenda með áherslu á eldri íbúa og ung börn. Er gert ráð fyrir að halda opinn fund með íbúum og áhugasömum um frumdrög hönnunarinnar á næstu vikum.
Nefndin felur skipulagsfulltrúa að boða til opins íbúafundar um hönnun lóðarinnar fyrir leiksvæði.
9.Minnisblað vegna skjól- og garðveggja
2410186
Lagt er fram að nýju minnisblað vegna skjól- og garðveggja sem lagt var fyrir fund skipulags- og umhverfisnefndar ásamt tilheyrandi reglum og leiðbeiningum þann 3. júní og fyrir bæjarstjórn þann 12. júní þar sem bæjarstjórn samþykkti að drög að reglum um girðingar, skjólveggi og smáhýsi verði kynntar fyrir bæjarbúum, tekið verði við ábendingum og unnið úr þeim áður en reglurnar verða bornar upp til samþykktar.
Nefndin leggur til að fela skipulagsfulltrúa að boða til opins fundar um skjól- og garðveggi sem verði haldinn samhliða fundi um lóðarhönnun fyrir Heiðmörk 66 á næstu vikum.
10.Ábending um vöntun á hleðslustöðvum vestan Breiðumarkar
2601144
Íbúðareigandi í Dalahrauni bendir á að næstu hleðstöðvar eru í talsverðri fjarlægð frá heimili hennar, í Sunnumörkinni og Austumörkinni. Spyr hún hvort að von sé á hverfishleðslustöð í hverfið þar sem margir íbúar og gestir séu á rafmagnsbílum og þætti gott að geta hlaðið bíla í nágrenninu.
Nefndin þakkar fyrir ábendinguna og beinir því til við umhverfisfulltrúa að leggja til tillögur að úrbótum.
11.Fundargerðir starfshópa og nefnda um íþróttamannvirki
2412124
Lögð er fram til kynningar fundargerð frá 10. fundi byggingarnefndar um viðbyggingu við íþróttahús.
Til kynningar.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 19:00.
Getum við bætt efni síðunnar?