Fara í efni

Skipulags- og umhverfisnefnd

25. fundur 06. janúar 2026 kl. 17:00 - 18:45 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Arnar Ingi Ingólfsson formaður
  • Kristján Björnsson varaformaður
  • Thelma Rún Runólfsdóttir aðalmaður
  • Brynja Hrafnkelsdóttir aðalmaður
  • Sigurður Einar Guðjónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Jón Friðrik Matthíasson byggingarfulltrúi
  • Hildur Gunnarsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Höskuldur Þorbjarnarson Umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði: Hildur Gunnarsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá
Arnar Ingi setti fund og leitaði eftir athugasemdum við fundarboð. Engar athugasemdir komu.

1.Skólphreinsistöð - Forhönnun - fráveituráðgjöf

2506004

Brynjólfur Björnsson og Ágúst Þór Margeirsson verkfræðingar hjá COWI kynna forhönnun á endurbótum á núverandi skólphreinsistöð ásamt viðbótarbyggingu til innleiðingar á afkastameiri skólphreinsun í núverandi stöð í Vorsabæ.

Forhönnunin er unnin í kjölfar valkostagreiningar fyrir stækkun og endurbætur á hreinsistöðinni dags. í mars 2025. Unnið hefur verið að málinu í samstarfi við Hveragerðisbæ.

Til kynningar.
Einar kom inn á fund kl. 17:45

2.Bréf frá Stjórnarráðinu varðandi umsókn um styrk vegna hönnunar og framkvæmda við fráveitu

2512097

Lagt fram bréf frá umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytinu dags. 11. desember 2025 varðandi umsókn um styrk vegna hönnunar og framkvæmda við fráveitur sveitarfélagsins á árunum 2025 og 2026. Í bréfinu er tilkynnt að umsókn Hveragerðisbæjar hefur verið samþykkt. Vísað er til reglugerðar nr. 1424/2020 um úthlutun styrkja til fráveitna sveitarfélaga vegna styrkhæfis verkefna. Styrkfjárhæðin nemur 30% af staðfestum heildarkostnaði vegna framkvæmda á árunum 2025 og 2026.
Nefndin fagnar styrkveitingu ráðuneytisins. Bréfið er lagt fram til kynningar.

3.Heiðmörk 30-36, Grundarreitur - skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag og breytingu á aðalskipulagi

2510173

Lögð er fram eftir auglýsingu skipulagslýsing fyrir breytingu á skilmálum aðalskipulags og nýtt deiliskipulag á svæði Grundar að Heiðmörk 30-36 dagsett í nóvember 2025 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa vegna innkominna athugasemda dags. 2. janúar 2025.

Svæðið er 1,15 ha og er landnotkun í núgildandi aðalskipulagi íbúðabyggð ÍB8. Svæðið er afmarkað til vesturs af Bláskógum, í austur af Litlumörk, í norður af Heiðmörk og í suður af Þelamörk. Markmið skipulagsins verður að móta íbúðarbyggð sem er til þess fallin að stuðla að góðu mannlífi og sambúð ólíkra hópa, að uppbygging falli vel að núverandi byggð og byggðarmynstri ásamt því að vera í samræmi við áherslur og stefnu í komandi Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037. Lagt er til að fjölga íbúðum á reitnum frá núgildandi ákvæðum aðalskipulags.

Frestur til athugasemda var frá 17. nóvember til 15. desember 2025. Umsagnir bárust frá Mílu dags. 17. nóvember, Brunavörnum Árnessýslu dags. 18. nóvember, Rarik dags. 21. nóvember, Skipulagsstofnun dags. 26. nóvember, Vegagerðinni suðursvæði dags. 3. desember, Veitum dags. 3. desember, Ingjibjörgu Sigmundsdóttur með undirskirftarlista frá eigendum 29 aðliggjandi lóða dags 12. desember og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands dags. 12. desember. Umsögn frá Minjastofnun Íslands barst eftir auglýstan athugasemdafrest eða þann 29. desember.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að vísa athugasemdum sem eiga við um deiliskipulag til áframhaldandi vinnu við deiliskipulagstillögu. Athugasemdir sem eiga við um aðalskipulag fái umfjöllun athugasemda eftir auglýsingu á tillögu að nýju Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar 2025-2037.

4.Áskorun ungmennaráðs vegna ruslatunna í bænum

2511112

Lögð er fram áskorun ungmennaráðs frá fundi þess þann 25. nóvember 2025. Áskorunin er svohljóðandi: "Okkur langar til þess að fjölga ruslatunnum á ljósastaura og á öðrum stöðum úti (ekki verið að tala um flokkunartunnur heimila) af því að af reynslu hefur verið of lítið aðgengi að tunnum og of langt á milli. Hrafnkell upplifði þetta í göngutúr um daginn þar sem hann var að borða og labbaði um í u.þ.b. 10 mínútur áður en hann fann ruslatunnu til að henda ruslinu í. Með þessari breytingu höldum við að það verði meira hvati fyrir því að henda rusli í rusl af því að fólk þarf ekki að leita lengi. Með þessu verður bærinn vonandi fínni, umgengi betri og minna rusl á götum."

Áskorunin var tekin fyrir á fundi bæjarstjórnar þann 11. desember 2025 þar sem bæjarstjórn samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að láta kanna möguleika á fjölgun sorpíláta í samræmi við áskorun ungmennaráðs og vísaði málinu til umræðu í skipulags- og umhverfisnefnd.
Nefndin þakkar ungmennaráði góða og gagnlega ábendingu og leggur til að kortasjá bæjarins verði uppfærð með þekju fyrir ruslatunnur bæjarins og að málið verði tekið upp á nýju að því loknu.

5.Markvissari árangur í umhverfis- og loftslagsmálum - kortlagning á aðgerðum sveitarfélaga

2512030

Lögð er fram kortlagning umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis á aðgerðum sveitarfélaga í umhverfis- og loftslagsmálum. Með framangreindri kortlagningu er þeim hluta verkefnisins eins og honum er lýst í aðgerðaáætlun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitafélaga lokið. Næstu skref eru frekari gagnaöflun varðandi ákveðin umhverfistengd verkefni og nýta á þær niðurstöður til að bæta upplýsingagjöf og stuðning til sveitarfélaga s.s. í gegnum Verkfærakistu loftslagsvænni sveitarfélaga.

Þegar hefur verið ráðist í ítarlegri gagnaöflun á grunni þeirra niðurstaðna sem settar eru fram í þessari skýrslu. Samband íslenskra sveitarfélaga framkvæmdi könnun á stöðu sveitarfélaga í loftslagsmálum og liggja niðurstöðurnar fyrir. Þegar er vinna í gangi sem byggir á niðurstöðum kortlagningarinnar. Þá má vænta þess að aðgerðinni verði framhaldið í endurskoðaðri stefnu ríkisins í málefnum sveitarfélaga.
Til kynningar.

6.Fundardagatal skipulags- og umhverfisnefndar 2025-2026

2509032

Lagt fram leiðrétt fundadagatal skipulags- og umhverfisnefndar fyrir 2025-2026.
Nefndin leggur til að bæjarstjórn samþykki leiðrétt fundadagatal nefndarinnar.
Fundargerð upplesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 18:45.

Getum við bætt efni síðunnar?