Fara í efni

Skipulags- og umhverfisnefnd

19. fundur 03. júní 2025 kl. 17:00 - 18:15 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Arnar Ingi Ingólfsson formaður
  • Kristján Björnsson varaformaður
  • Thelma Rún Runólfsdóttir aðalmaður
  • Brynja Hrafnkelsdóttir aðalmaður
  • Sigurður Einar Guðjónsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Jón Friðrik Matthíasson byggingarfulltrúi
  • Hildur Gunnarsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Höskuldur Þorbjarnarson Umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði: Hildur Gunnarsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá
Arnar Ingi setti fund og leitaði eftir athugasemdum við fundarboð sem ekki komu.

1.Skipulagslýsing fyrir aðalskipulagsbreytingu á AT3 og nýtt deiliskipulag í landi Fagrahvamms og Reykjamarkar.

2411159

Lögð er fram skipulagslýsing fyrir aðalskipulagsbreytingu og nýtt deiliskipulag á svæði AT3 sem er land Fagrahvamms og Reykjamarkar 22 dagsett í maí 2025. Svæðið er 4,6 ha og er landnotkun í núgildandi aðalskipulagi athafnasvæði þar sem gert var ráð fyrir blandaðri notkun gróður- og íbúðarhúsa á reitnum. Breytt landnotkun miðast við að svæðið verði íbúðabyggð. Hverfisvernd er meðfram Varmá. Verndarákvæði eru einnig á nokkrum trjám innan svæðis.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa skipulagslýsinguna skv. 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þegar búið verður að laga eftirfarandi atriði: Laga þarf útmörk skipulagssvæðis utan um AT3 eins og það er skilgreint í dag og gera þarf ráð fyrir aksturstengingu frá íbúðarsvæði að aðliggjandi svæði sem nú er tjaldsvæði.

2.Deiliskipulagsbreyting Ás- og Grundarsvæðis vegna Hverahlíðar - uppskipting lóða

2505160

Lögð er fram óveruleg breyting á deiliskipulagi Ás- og Grundarsvæðis vegna Hverahlíðar. Markmið breytingar er að skipta upp lóð hjúkrunarheimilisins, sem er 9.072m² að stærð og nær yfir allar byggingar og byggingarreiti milli Bröttuhlíðar og Hverahlíðar, upp í þrjár lóðir. Vegna breytingar lóðarmarka eru kvaðir um lagnaleiðir og aðkomu að sorpi nú sýndar á uppdrætti. Byggingarheimildir haldast óbreyttar. Ofangreindar breytingarnar eru í fullu samræmi við gildandi aðalskipulag. Breytingin er talin óveruleg, þar sem allar byggingarheimildir haldast óbreyttar. Að öðru leyti haldast gildandi skipulagsskilmálar einnig óbreyttir.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja óverulega deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem breytingin víkur hvorki frá notkun, nýtingarhlutfalli, útliti né formi svæðisins.

3.Reglur um girðingar, skjólveggi og smáhýsi

2410186

Lagðar eru fram reglur um girðingar, skjólveggi og smáhýsi. Einnig er lagt fram skýringarit og leiðbeiningarrit sem er hugsað er sem almennar leiðbeiningar við gerð skjólveggja og fleiri mála er snerta lóðir og lóðamörk í Hveragerði.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að drög að reglum um girðingar, skjól- og garðveggi verði kynntar fyrir bæjarbúum og tekið við ábendingum, áður en reglurnar verða bornar upp til samþykktar.

4.Skógrækt

2505161

Með áframhaldandi uppbyggingu í Kambalandi sem og við íþróttasvæðið í Ölfusdal er lagt til að Hveragerðisbær fari í átak í skógrækt og óski eftir samstarfi og samvinnu Skógræktarfélags Hveragerðis.

Skógrækt við Hamarinn kemur til með að styrkja ásýnd svæðisins og skapa skjól fyrir íbúa og gesti. Með því að rækta fjölbreytt tré og runna má draga úr vindi og bæta loftgæði, sem er sérstaklega mikilvægt við íþróttasvæði og göngustíga þar sem fólk dvelur lengi utandyra. Skógræktin verður einnig náttúrulegur bakgrunnur fyrir Kambaland, sem stuðlar að heildrænu og samfelldu yfirbragði svæðisins.

Í samhengi við uppbyggingu íþróttamannvirkja í dalnum er sömuleiðis mikilvægt að leggja áherslu á samfellda skógrækt meðfram Hamrinum. Slík skógrækt hefur fjölþætt gildi sem fellur vel að markmiðum Hveragerðisbæjar sem „blómabæjar“, þar sem náttúrufegurð og grænar lausnir eru í brennidepli.

Skógrækt styður við sjálfbærni og vistvæna þróun í takt við stefnu Hveragerðisbæjar. Með gróðursetningu og vistvænni landnotkun má stuðla að bindingu kolefnis, auk þess sem gróðurlendi veitir búsvæði fyrir fugla og smádýr sem styrkja líffræðilega fjölbreytni.

Skógrækt meðfram Hamrinum og í kringum íþróttamannvirkin er til þess fallin að auka ánægju og vellíðan bæjarbúa. Fegurð og skjólgóður gróður eykur gildi útivistar og bætir upplifun gesta sem koma í íþróttamannvirkin og að Kambalandi. Með samstilltu átaki í skógrækt má því skapa bæði varanleg verðmæti fyrir samfélagið og treysta ímynd Hveragerðisbæjar sem græns og fallegs staðar.

Nefndin leggur til að bæjarstjórn feli skipulagsfulltrúa og garðyrkjustjóra að vinna málið áfram í samvinnu við Skógræktarfélag Hveragerðis.

5.Heiðmörk 66 - lóðarhönnun fyrir fjölbreyttan hóp notenda

2505162

Lagt er fram tilboð í forhönnun og samráð við næsta nágrenni, vegna hönnunar leikskvæðis við Heiðmörk 66 frá Dagnýju Bjarnadóttur landslagsarkitekt hjá DLD.
Til kynningar.

6.Breiðamörk 25 - umsókn um breytingu á notkun efri hæðar í gistiþjónustu

2505165

Með bréfi dags. 5 maí 2025 óskar Elfa D. Þórðardóttir eftir breytingu á notkun efri hæðar Breiðumarkar 25 úr íbúð í gistiheimili. Kemur fram í umsókn að gistiheimili hafi verið rekið í húsinu frá árinu 2016.

Breiðamörk 25 er á miðsvæði M1 skv. gildandi aðalskipulagi. Segir að á reitnum skuli gera ráð fyrir blandaðri 1-2 hæða byggð sem falli vel að miðbæjarstarfsemi. Miðsvæði er í skipulagsreglugerð skilgreint sem svæði fyrir verslunar- og þjónustustarfsemi og stjórnsýslu sem þjónar heilu landsvæði, þéttbýlisstað eða fleiri en einu bæjarhverfi, svo sem verslanir, skrifstofur, þjónustustofnanir, hótel, veitinga- og gistihús, menningarstofnanir og önnur hreinleg atvinnustarfsemi sem talin er samræmast yfirbragði og eðli starfsemi miðsvæðis. Í gildandi deiliskipulagi sem samþykkt var 13. desember 1990 er Breiðamörk 25 tilgreind sem verslun- og þjónustustarfsemi og merkt hótel. Síðari breytingar á deiliskipulagi hafa ekki haft áhrif á notkun þó að í síðustu breytingu sé upprunalegt heiti hússins notað, sem er Þinghús.
Breyting á notkun úr íbúð í gistiheimili er í samræmi við gildandi heimildir í skipulagi. Umsækjanda er bent á að sækja um byggingarleyfi fyrir breytingunni og skila inn breyttum aðaluppdráttum.

7.Hveramörk 19 - ósk um fjölgun íbúða

2505166

Með bréfi dags. 12. maí 2025 óskar Geir Steinþórsson f.h. A3 fasteigna eftir heimild til að skipta eign 0101 að Hveramörk 19 upp í tvo eignarhluta.

Hveramörk 19 er tvíbýlishús með íbúð á sitthvorri hæðinni. Heimilað var árið 2003 að byggja bílskúr við íbúð 1. hæðar. Seinna var heimilað að byggja hæð ofan á húsið. Óskað er eftir að samþykkja íbúð í bílskúr. Á sömu lóð er einnig einbýlishús Hveramörk 19A í eigu þriðja aðila.

Í gildi er deilskipulag miðbæjarsvæðis samþykkt árið 1990. Engir skilmálar eru fyrir lóðina í deiliskipulaginu.
Umsækjanda er bent á að sækja um deiliskipulagsbreytingu fyrir fjölgun íbúða. Með ósk um breytingu á deiliskipulagi þarf að fylgja samþykki allra meðlóðarhafa.

8.Lóðarblað - Borgarhraun 1

2501026

Lagt er fram breytt merkjalýsing með tilheyrandi lóðarblaði vegna lóðar við Borgarhraun 1. Bréf var sent til allra lóðarhafa dags. 5. maí 2025 og gefinn frestur til 23. maí til athugasemda. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu með tilheyrandi lóðarblaði.

9.Lóðarblað - Borgarhraun 2

2501027

Lagt er fram breytt merkjalýsing með tilheyrandi lóðarblaði vegna lóðar við Borgarhraun 2. Bréf var sent til allra lóðarhafa dags. 5. maí 2025 og gefinn frestur til 23. maí til athugasemda. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu með tilheyrandi lóðarblaði.

10.Lóðarblað - Borgarhraun 3

2501028

Lagt er fram breytt merkjalýsing með tilheyrandi lóðarblaði vegna lóðar við Borgarhraun 3. Bréf var sent til allra lóðarhafa dags. 5. maí 2025 og gefinn frestur til 23. maí til athugasemda. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu með tilheyrandi lóðarblaði.

11.Lóðarblað - Borgarhraun 4

2501029

Lagt er fram breytt merkjalýsing með tilheyrandi lóðarblaði vegna lóðar við Borgarhraun 4. Bréf var sent til allra lóðarhafa dags. 5. maí 2025 og gefinn frestur til 23. maí til athugasemda. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu með tilheyrandi lóðarblaði.

12.Lóðarblað - Borgarhraun 5

2501030

Lagt er fram breytt merkjalýsing með tilheyrandi lóðarblaði vegna lóðar við Borgarhraun 5. Bréf var sent til allra lóðarhafa dags. 5. maí 2025 og gefinn frestur til 23. maí til athugasemda. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu með tilheyrandi lóðarblaði.

13.Lóðarblað - Borgarhraun 6

2501031

Lagt er fram breytt merkjalýsing með tilheyrandi lóðarblaði vegna lóðar við Borgarhraun 6. Bréf var sent til allra lóðarhafa dags. 5. maí 2025 og gefinn frestur til 23. maí til athugasemda. Engar athugasemdir bárust.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða merkjalýsingu með tilheyrandi lóðarblaði.

Fundi slitið - kl. 18:15.

Getum við bætt efni síðunnar?