Fara í efni

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

16. fundur 21. október 2026 kl. 17:00 - 19:00 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Valkyrja Sigrún Sigurðardóttir formaður
  • Sigurður Bjarni Jónsson varaformaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir aðalmaður
  • Sveinn Friðriksson aðalmaður
Starfsmenn
  • Nína Kjartansdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Nína Kjartansdóttir Ráðgjafaþroskaþjálfi
Dagskrá
Fulltrúi Samfylkingar Harpa Björnsdóttir boðaði forföll, varamaður komst ekki í hennar stað.

1.Skipan fulltrúa í samráðshópi málefna fatlaðs fólks 2026-2027

2609069

Eftirfarandi gögn voru lögð fram til kynningar:



Tölvupóstur frá Umhyggju, félagi langveikra barna, dags. 12. október 2026, vegna beiðni um tilnefningu fulltrúa í samráðshópinn.



Tölvupóstur frá Blindrafélaginu, dags. 19. október 2026, vegna beiðni um tilnefningu fulltrúa í samráðshópinn.



Auglýsing um eftirspurn eftir fulltrúum hagsmunasamtaka í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði, ódagsett.



Umhyggja félag langveikra barna hefur svarað tölvupósti starfsmanns samráðshóps um tilnefningu félagsmanns í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði.



Blindrafélagið hefur svarað tölvupósti starfsmanns samráðshóps um tilnefningu félagsmanns í samráðshóp um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði.



Starfsmaður samráðshóps hefur einnig sett auglýsingu á heimasíðu og Facebooksíðu Hveragerðisbæjar. Auglýsinguna má skoða á heimasíðu Hveragerðisbæjar undir fréttir.
Starfsmaður samráðshóps kynnti stöðu mála varðandi skipan fulltrúa hagsmunasamtaka í samráðshópinn fyrir starfstímabilið 2026-2027.

Fram kom að óskað hefur verið eftir tilnefningum frá hagsmunasamtökum fatlaðs fólks. Svör hafa borist frá Umhyggju, félagi langveikra barna, og Blindrafélaginu vegna erindisins.

Jafnframt hefur verið birt auglýsing á heimasíðu og Facebook-síðu Hveragerðisbæjar þar sem óskað er eftir áhugasömum fulltrúum hagsmunasamtaka til þátttöku í starfi samráðshópsins.

Samráðshópurinn leggur áherslu á mikilvægi þess að tryggja aðkomu og þátttöku fatlaðs fólks og hagsmunasamtaka þess í starfi hópsins.

Samráðshópur felur starfsmanni að hafa samband við tilnefnda aðila og stefnt verður á að þeir verði kynntir á næsta fundi samráðshóps.

2.Erindisbréf Samráðshóps um málefni fatlaðs fólks

2501080

Eftirfarandi skjal var lagt fram til kynningar:



Tölvupóstur starfsmanns samráðshóps til forstöðumanna, deildarstjóra og sviðsstjóra Hveragerðisbæjar, Fjárhagsáætlun, sértæk sumarstörf og atvinnutækifæri, dags. 6. október 2026.



Fjallað sérstaklega um eftirfarandi efnisliði í erindisbréfi samráðshóp:



3. efnislið 6. gr. um árlegan fund með hagsmunaaðilum, notendum þjónustu sveitarfélagsins, hagsmunasamtökum notenda félagsþjónustu.



5. efnislið 6. gr. um að árleg skýrsla um starfsemi samráðshóps skuli vera kynnt fyrir bæjarráð.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks fór yfir erindisbréf hópsins, dags. 29. janúar 2025, og fjallaði sérstaklega um 6. gr. erindisbréfsins.

Samráðshópurinn leggur áherslu á mikilvægi þess að framangreind ákvæði séu höfð til hliðsjónar við skipulagningu starfs hópsins og að tryggt sé að þeim verði fylgt eftir.

Samráðshópurinn felur starfsmanni hópsins, í samráði við formann og varaformann, að undirbúa tillögur að fyrirkomulagi árlegs samráðsfundar með hagsmunaaðilum og gerð árlegrar starfsskýrslu til kynningar fyrir bæjarráði. Tillögurnar verði í kjölfarið lagðar fyrir fulltrúa samráðshópinn til frekari umfjöllunar og ákvörðunar.

3.Auðlesið Ísland - Miðstöð um auðlesið mál

2610138

Eftirfarandi gögn voru lögð fram til kynningar:



Tölvupóstur frá Snorra Rafni Hallssyni, verkefnastjóra Miðstöðvar um auðlesið mál, dags. 13. október 2026.



Auðlesið mál - handbók, útgefin árið 2025.



Auðlesið Ísland - Selfoss, dags. 12. október 2026.



Starfsmaður samráðshóps kynnir málefnið fyrir fulltrúum.
Starfsmaður samráðshóps kynnti málefnið og fór yfir mikilvægi þess að upplýsingar á vegum sveitarfélagsins séu aðgengilegar og settar fram á skýru og auðskildu máli.

Samráðshópurinn tekur jákvætt í kynninguna og leggur áherslu á mikilvægi auðlesins máls til að stuðla að auknu upplýsingaaðgengi, sjálfstæði og þátttöku fatlaðs fólks í sveitarfélaginu.

Samráðshópurinn vill hvetja allar stofnanir sveitafélagsins til að kynna sér verkefnið auðlesið Ísland og tileinka sér auðlesið mál við miðlun upplýsinga til íbúa. Einnig hvetur samráðshópurinn bæjarstjórn og stofnanir bæjarins til að skoða möguleikann á að fá kynningu um auðlesið mál frá verkefnastjóra Miðstöðvar um auðlesið mál.

4.Fjárhagsáætlun - sértæk sumarstörf og atvinnutækifæri

2610139

Eftirfarandi skjal var lagt fram til kynningar:



Tölvupóstur starfsmanns samráðshóps til forstöðumanna, deildarstjóra og sviðsstjóra Hveragerðisbæjar, Fjárhagsáætlun, sértæk sumarstörf og atvinnutækifæri, dags. 6. október 2026.



Starfsmaður samráðshóps leggur fram til kynningar erindi vegna fjárhagsáætlanagerðar sveitarfélagsins fyrir 2027
Starfsmaður samráðshóps kynnti erindi sem sent var til stjórnenda Hveragerðisbæjar í tengslum við undirbúning fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2027.

Í erindinu er vakin athygli á mikilvægi þess að huga að atvinnumöguleikum fyrir fatlað fólk og einstaklinga með skerta starfsgetu innan starfsstöðva sveitarfélagsins. Sérstaklega er hvatt til þess að stjórnendur skoði möguleika á sértækum sumarstörfum fyrir ungmenni, líkt og boðið hefur verið upp á undanfarin ár, sem og hlutastörfum og atvinnu með stuðningi, og geri ráð fyrir slíkum störfum í fjárhagsáætlunum sínum þar sem því verður við komið.

Samráðshópurinn leggur áherslu á mikilvægi þess að skapa fjölbreytt og aðgengileg atvinnutækifæri fyrir fatlað fólk og einstaklinga með skerta starfsgetu og stuðla þannig að aukinni atvinnuþátttöku, sjálfstæði og virkni í samfélaginu.

Samráðshópur leggur til við bæjarráð að taka málefnið sérstaklega til skoðunar við undirbúning fjárhagsáætlunar og fylgja erindi starfsmanns samráðshóps eftir við stjórnendur starfsstöðva sveitarfélagsins.

Fundi slitið - kl. 19:00.

Getum við bætt efni síðunnar?