Fara í efni

Öldungaráð

15. fundur 02. september 2026 kl. 14:00 - 15:00 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Eyjólfur Kristinn Kolbeins aðalmaður
  • Ingibjörg Sigmundsdóttir aðalmaður
  • Sveinn Pálsson aðalmaður
  • Pálína Sigurjónsdóttir aðalmaður
  • Daði Ingimundarson aðalmaður
  • Berglind Rós Ragnarsdóttir Fulltrúi Heilsugæslu
Starfsmenn
  • Kolbrún Tanja Eggertsdóttir mannauðsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Kolbrún Tanja Eggertsdóttir Mannauðsfulltrúi
Dagskrá
Kolbrún Tanja Eggertsdóttir, starfsmaður öldungaráðs setur fundinn og stýrir honum þar til kosningu formanns öldungaráðs er lokið sbr. fundarlið nr.1.

Kolbrún Tanja Eggertsdóttir leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.

1.Skipan í nefndir og ráð kjörtímabilið 2026-2030

2606004

Samkvæmt 2. gr. erindisbréfs öldungaráðs kýs ráðið sér formann og varaformann á fyrsta fundi að loknum sveitarstjórnarkosningum.



Kosning formanns og varaformanns öldungaráðs fyrir nýtt kjörtímabil fer fram.
Eyjólfur Kristinn Kolbeins var kosinn formaður öldungaráðs með öllum greiddum atkvæðum og tók við sem fundarstjóri.

Sveinn Pálsson var kosinn varaformaður öldungaráðs með öllum greiddum atkvæðum.

2.Erindsbréf Öldungaráðs Hveragerðisbæjar

2512044

Erindisbréf öldungaráðs Hveragerðisbæjar var samþykkt af bæjarstjórn 8. janúar 2026. Í erindisbréfinu er kveðið á um skipan og umboð ráðsins, markmið og hlutverk, helstu verkefni, fundi og starfshætti.



Erindisbréfið lagt fram til kynningar og farið yfir helstu atriði varðandi hlutverk og starfshætti ráðsins.

3.Fundadagatal öldungaráðs fyrir starfsárið 2026-2027

2608159

Samkvæmt erindisbréfi kemur öldungaráð saman á ákveðnum fundartíma samkvæmt fundadagatali sem bæjarstjórn samþykkir. Ráðið fundar sex sinnum á ári og skulu fundir dreifast jafnt yfir árið.



Fundadagatal öldungaráðs verður ákveðið.
Samkvæmt 5. gr. erindisbréfs öldungaráðs fundar ráðið að jafnaði sex sinnum á ári skv. fundadagatali.

Fundir ráðsins verða að jafnaði haldnir annan miðvikudag í mánuði.

á haustönn verður fundað í september, október og nóvember. Á vorönn verður fundað í janúar, mars og maí. Gert er ráð fyrir fundahléi yfir sumarmánuðina.

4.Starfsáætlun öldungaráðs 2026-2027

2608160

Hlutverk öldungaráðs er meðal annars að vera ráðgefandi við stefnumörkun og áætlanagerð í málefnum aldraðra, ásamt því að fylgjast með framkvæmd og þróun þjónustu við aldraða í Hveragerði.



Á fundinum verður rætt um helstu áherslur og verkefni ráðsins á komandi starfsári.
Öldungaráð ræddi helstu áherslur ráðsins á komandi starfsári.

Ráðið leggur áherslu á að halda annað íbúaþing fyrir 60 ára og eldri. Halda áfram að vinna að þjónustumiðstöð aldraðra í samráði við bæjaryfirvöld. Vera virkur samráðsvettvangur um málefni eldri íbúa og fylgjast með framkvæmd og þróun þjónustu við aldraða í Hveragerði t.a.m. þróunarverkefnið Gott að eldast. Jafnframt verði lögð áhersla á virkt samráð við eldri íbúa og efla aðgengi að þjónustu og upplýsingum. Sporna gegn félagslegri eingangrun og efla félagslega þátttöku og vellíðan ásamt aðgengi og öryggi í nærumhverfi líkt og við sundlaugina í Laugaskarði.

Samþykkt að þær áherslur sem fram komu á fundinum verði hafðar til hliðsjónar við áframhaldandi störf ráðsins.
Fundargerðin er upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 15:00.

Getum við bætt efni síðunnar?