Öldungaráð
Dagskrá
1.Skýrsla um starfsemi öldungaráðs árið 2025
2512044
Samkvæmt erindisbréfi öldungaráðs skal leggja fram skýrslu um starfsemi öldungaráðs vegna ársins 2025 og kynna fyrir bæjarráði
Öldungaráð fór yfir starfsemi ráðsins árið 2025 og hefur falið Steinunni A. Helgadóttur, Önnu Jórunni Stefánsdóttur og Garðari Rúnari Árnasyni að taka saman skýrslu vegna starfsemi Öldungaráðs yfir árið 2025 og leggja fyrir á næsta öldungaráðsfundi.
2.Hópur um félags- og þjónustukjarna eldri borgara
2510025
Kynning á starfsemi hóps um félags- og þjónustukjarna eldri borgara
Daði Ingimundarson kynnir starfsemi hóps um félags- og þjónustukjarna eldri borgara og stendur til að skila inn lokaskýrslu til bæjarstjórnar í apríl. Öldungaráð þakkar fyrir kynninguna og fagnar þessu mikilvæga starfi.
3.Akstursþjónusta eldri borgara - umræða
2505002
Fulltrúi félags eldri borgara leggur fram umræðu er varðar möguleika og þörf á Strætó í Hveragerði ásamt því að kanna notkun á leigubílaþjónustu og ánægju íbúa með þjónustuna.
Öldungaráð veltir fyrir sér hvort ekki sé kominn tími til að kanna þörf íbúa fyrir innanbæjar Strætó með stækkandi bæjarfélagi og vaxandi umferð á götum bæjarins. Óskað er eftir að Hveragerðisbær kanni áhuga íbúa á slíkri þjónustu.
Fundi slitið - kl. 15:00.
Getum við bætt efni síðunnar?