Fara í efni

Bæjarráð

885. fundur 09. apríl 2026 kl. 08:00 - 09:57 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir formaður
  • Friðrik Sigurbjörnsson aðalmaður
  • Njörður Sigurðsson varamaður
Starfsmenn
  • Pétur G. Markan bæjarstjóri
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Bréf frá Brynju leigufélagi ses.

2603052

Lagt var fram bréf frá Brynju leigufélagi ses., dags. 6. mars 2026, þar sem upplýst er um að félagið hafi lagt fram umsókn til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um stofnframlag til kaupa á þremur íbúðum í Hveragerðisbæ á árinu 2026. Stofnframlag sveitarfélaga í slíkum íbúðum er 12%.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði tók málið til umræðu á fundi sínum þann 25. mars s.l. og fól starfsmanni samráðshópsins að gera minnisblað með umsögn og áliti vegna málsins og skila til bæjarstjóra. Bæjarráð tók erindið til umræðu og erindið verður aftur á dagskrá bæjarráðs þann 16. apríl n.k.

2.Beiðni um umsögn um útgáfu tækifærisleyfis til áfengisveitinga í tengslum við árshátíð Hveragerðisbæjar

2603150

Eftirtalin skjöl voru lögð fram:

Umsókn um tækifærisleyfi, dags. 11. mars 2026.

Bréf frá sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 24. mars 2026.



Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn vegna útgáfu tækifærisleyfis til áfengisveitinga í tengslum við árshátíð Hveragerðisbæjar sem fyrirhuguð er 18. apríl 2026.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að gera ekki athugasemdir við að Tónræktinni ehf. verði veitt tækifærisleyfi til áfengisveitinga í tengslum við árshátíð Hveragerðisbæjar þann 18. apríl 2026.

3.Bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis

2601116

Lagt var fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 24. mars 2026, þar sem tilkynnt er um að atvinnuveganefnd Alþingis hafi sent 529. og 530. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málin varða fyrirhugaða lagasetningu um lagareldi og breytingu á lögum um lax- og silungsveiði. Umsagnarfrestur er til og með 10. apríl 2026.
Bréfið var lagt fram til kynningar.

4.Bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis

2601116

Lagt var fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 26. mars 2026, þar sem tilkynnt er um að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafi sent 565. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar frumvarp til breytinga á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun. Umsagnarfrestur er til og með 14. apríl 2026.
Bréfið var lagt fram til kynningar.

5.Bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis

2601116

Lagt var fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 30. mars 2026, þar sem tilkynnt er um að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafi sent 582. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar frumvarp til breytinga á ýmsum lögum sem miðar að því að einfalda regluverk og auka skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Umsagnarfrestur er til og með 16. apríl 2026.
Bréfið var lagt fram til kynningar.

6.Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

2603195

Lagt var fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 27. mars 2026, ásamt drögum að stefnu um opinbera þjónustu sem hefur verið í vinnslu hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Drög að stefnu um opinbera þjónustu var lögð fram til kynningar.

7.Brunavarnaráætlun Brunavarna Árnessýslu bs.

2603194

Eftirtalin skjöl voru lögð fram:

Bréf frá slökkviliðsstjóra Brunavarna Árnessýslu, dags. 26. mars 2026.

Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu með gildistíma frá febrúar 2026 til febrúar 2031 (auðkenni: 09-03-2026 09:00).



Í bréfi frá slökkviliðsstjóra kemur fram að brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu hafi verið samþykkt af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og hjá stjórn Brunavarna Árnessýslu.
Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu var lögð fram til kynningar.

8.Bréf frá Gallup vegna könnunar - Sveitarfélag ársins

2603207

Lagt var fram bréf frá Gallup, móttekið 25. mars 2026, þar sem Hveragerðisbæ er boðin þátttaka í könnuninni "Sveitarfélag ársins".
Bréfið var lagt fram til kynningar.

9.Bréf frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga

2604007

Lagt var fram bréf frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, dags. 1. apríl 2026, þar sem óskað er eftir fulltrúum frá Hveragerðisbæ á samráðsfund/vinnustofu um endurskoðun byggðaáætlunar þann 21. apríl n.k. Fundurinn er haldinn af Innviðaráðuneytinu og Byggðastofnun í samstarfi við SASS.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að tilnefna Drífu Þrastardóttur, aðstoðarmann í tæknideild og Hildi Gunnarsdóttur, skipulagsfulltrúa, sem fulltrúa Hveragerðisbæjar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að láta upplýsa ungmennaráð um fundinn.

10.Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2025

2512046

Lagður er fram ársreikningur 2025 fyrir Hveragerðisbæ.



Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, kom inn á fundinn undir þessum fundarlið og kynnti ársreikninginn.
Bæjarráð samþykkti að vísa ársreikningnum til endurskoðunar og til fyrri umræðu bæjarstjórnar.

11.Jafnlaunavottun

2603133

Lagt var fram minnisblað skrifstofustjóra, dags. 23. mars 2026, ásamt endurútgefnu vottorði vegna jafnlaunavottunar fyrir Hveragerðisbæ.



Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, kom inn á fundinn undir þessum fundarlið og kynnti niðurstöður jafnlaunavottunar.
Vottorð um jafnlaunavottun og minnisblað skrifstofustjóra var lagt fram til kynningar.

12.Umsögn Hveragerðisbæjar um frumvarp til sveitarstjórnarlaga

2603123

Lögð var fram umsögn Hveragerðisbæjar, dags. 20. mars 2026, um frumvarp til sveitarstjórnarlaga.
Umsögnin var lögð fram til kynningar.

13.Ósk frá öldungaráði vegna akstursþjónustu fyrir almenning

2505002

Á fundi öldungaráðs dags. 18. mars 2026, voru ræddir möguleikar og þörf á almenningssamgöngum innanbæjar í Hveragerði. Á fundinum var eftirfarandi bókað: Öldungaráð veltir fyrir sér hvort ekki sé kominn tími til að kanna þörf íbúa fyrir innanbæjar Strætó með stækkandi bæjarfélagi og vaxandi umferð á götum bæjarins. Óskað er eftir að Hveragerðisbær kanni áhuga íbúa á slíkri þjónustu.
Unnið hefur verið að því að kanna möguleika á að samþætta frístundaakstur og almenningssamgöngur hjá Hveragerðisbæ. Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að upplýsa bæjarráð um niðurstöðu þeirrar vinnu þegar hún liggur fyrir.

14.Ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs. 2025

2603169

Lagður var fram ársreikningur 2025 fyrir Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bs.
Ársreikningurinn var lagður fram til kynningar.

15.Ársreikningur Sorpstöðvar Suðurlands bs. 2025

2603166

Lagður var fram ársreikningur 2025 fyrir Sorpstöð Suðurlands bs.
Ársreikningurinn var lagður fram til kynningar.

16.Ársreikningur Almannavarna Árnessýslu 2025

2603165

Lagður var fram ársreikningur 2025 fyrir Almannavarnir Árnessýslu.
Ársreikningurinn var lagður fram til kynningar.

17.Ársreikningur Arnardrangs hses. 2025

2603189

Lagður var fram ársreikningur 2025 fyrir Arnardrang hses.
Ársreikningurinn var lagður fram til kynningar.

18.Ársreikningur Byggðasafns Árnesinga bs. 2025

2603112

Lagður var fram ársreikningur 2025 fyrir Byggðasafn Árnesinga bs.
Ársreikningurinn var lagður fram til kynningar.

19.Ársreikningur Brunavarna Árnessýslu bs. 2025

2603134

Lagður var fram ársreikningur 2025 fyrir Brunavarnir Árnessýslu bs.
Ársreikningurinn var lagður fram til kynningar.

20.Ársreikningur Bergrisans bs. 2025

2603227

Lagður var fram ársreikningur 2025 fyrir Bergrisann bs.
Ársreikningurinn var lagður fram til kynningar.

21.Ársreikningur Tónlistarskóla Árnesinga bs. 2025

2603162

Lagður var fram ársreikningur 2025 fyrir Tónlistarskóla Árnesinga bs.
Ársreikningurinn var lagður fram til kynningar.

22.Tillaga að breyttum fundartíma bæjarstjórnar í maí 2026

2603204

Kynnt er tillaga sem lögð verður fyrir bæjarstjórn um að bæjarstjórnarfundur sem fyrirhugaður var þann 13. maí n.k. verði færður til 12. maí 2026.
Pétur G. Markan, bæjarstjóri, kynnti tillögu um breytingu á fundartíma bæjarstjórnar í maí.

23.Heiðmörk 30-36, Grundarreitur - nýtt deiliskipulag

2510173

Eftirtalin skjöl voru lögð fram:

Skipulagsuppdráttur með skilmálum, dags. 27. janúar 2026.

Greinargerð, dags. mars 2026.

Skýringaruppdráttur, dags. 27. janúar 2026.

Skuggavarpsuppdráttur, dags. 27. janúar 2026.



Hildur Gunnarsdóttir, skipulagsfulltrúi, kom inn á fundinn og kynnti deiliskipulagstillöguna.
Skipulagsgögnin voru lögð fram til kynningar.

24.Fyrirspurn frá fulltrúa D-lista um kostnað vegna bæjarstjórnarfunda

2604005

Lögð er fram eftirfarandi fyrirspurn frá fulltrúa D-lista:



Fulltrúi D-listans óskar eftir skriflegum svörum með sundurliðun á kostnaði vegna síðustu tveggja bæjarstjórnarfunda sem haldnir hafa verið í sal Grunnskólans í Hveragerði.



Óskað er eftir kostnaði við kaup eða leigu á búnaði til upptöku, kostnaði tæknimanna og einnig kostnaði vegna launa starfsmanna grunnskólans sem komu að uppsetningu á sal fyrir bæjarstjórnarfundina. Ásamt öðrum kostnaði sem kann að hafa fallið til vegna fundarhalda í grunnskólanum.



Friðrik Sigurbjörnsson

Pétur G. Markan, bæjarstjóri, lagði fram minnisblað, dags. 7. apríl 2026, með upplýsingum um kostnað.

25.Fyrirspurn frá fulltrúa D-lista um uppbyggingu íþróttamannvirkja

2604004

Lögð er fram eftirfarandi fyrirspurn frá fulltrúa D-lista:



Fulltrúi D-lista óskar eftir skriflegum upplýsingum um stöðu mála varðandi uppbyggingu íþróttamannvirkja í Hveragerði. Óskað er eftir uppfærðum kostnaðar- og tímaáætlunum vegna þeirra verkefna sem um ræðir.



Gervigrasvöllur

Óskað er eftir að tekin verði saman heildaryfirlit yfir þann kostnað sem fallið hefur á Hveragerðisbæ vegna uppbyggingar gervigrasvallar í dalnum. Í því yfirliti komi fram sundurliðun kostnaðar, m.a. vegna hönnunar, útboða, jarðvegsframkvæmda, lagna, tæknirýmis og lagningar gervigrass.



Jafnframt er óskað eftir:

-kostnaðaráætlun vegna fyrirhugaðrar fjárfestingar í ljósabúnaði við völlinn

-uppfærðri tímaáætlun verksins, þar sem skýrt komi fram hvenær gert er ráð fyrir að völlurinn verði tekinn í notkun annars vegar og hvenær uppsetningu ljósabúnaðar verði lokið hins vegar.



Íþróttahús við Skólamörk

Óskað er eftir að tekin verði saman heildaryfirlit yfir þann kostnað sem fallið hefur á Hveragerðisbæ vegna viðbyggingar við íþróttahúsið við Skólamörk. Í því yfirliti komi fram sundurliðun kostnaðar, m.a. vegna hönnunar, útboða og jarðvegsframkvæmda.



Jafnframt er óskað eftir:

- uppfærðri kostnaðaráætlun vegna verksins

- uppfærðri tímaáætlun, þar sem skýrt komi fram hvenær gert er ráð fyrir að viðbyggingin verði tekin í notkun

- áætluðum heildarkostnaði verksins við verklok



Þá óskar fulltrúi D-listans einnig eftir upplýsingum heildarkostnað við hönnun og útboði ásamt öðrum kostnaðarliðum sem tengjast hugmyndum að uppbyggingu íþróttamannvirkja á kjörtímabílinu. Svo sem vegna byggingar íþróttahús á grunni Hamarshallarinnar og vegna þeirra hugmynda sem uppi voru um bráðabirgða íþróttaaðstöðu í iðnaðarhúsnæði við Vorsabæ.



Friðrik Sigurbjörnsson
Pétur G. Markan, bæjarstjóri, upplýsti að unnið væri að því að taka saman umbeðnar upplýsingar og að fyrirspurninni verði svarað á næsta fundi bæjarráðs 16. apríl n.k.

26.Verkfundargerð - Reykjadalur - Veitulagnir

2603026

Lögð var fram verkfundargerð frá 4. mars 2026 vegna lagningar veitulagna í Reykjadal.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

27.Verkfundargerð - Íþróttahús við Skólamörk 2 - 1. áfangi

2603009

Lögð var fram verkfundargerð frá 19. mars 2026 vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

28.Verkfundagerð - Hrauntunga - Tröllahraun

2602049

Lögð var fram verkfundargerð frá 5. mars 2026 vegna gatnagerðar í Hrauntungu og Tröllahrauni.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

29.Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa

2603005F

Lögð var fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 13. mars 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

30.Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa

2603014F

Lögð var fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 26. mars 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

31.Fundagerð stjórnar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs.

2601129

Lögð var fram fundargerð stjórnar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs. frá 24. mars 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

32.Fundargerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga bs.

2603203

Lögð var fram fundargerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga bs. frá 24. mars 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

33.Fundargerð stjórnar Arnardrangs hses.

2603188

Lögð var fram fundargerð stjórnar Arnardrangs hses. frá 23. mars 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

34.Fundagerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2602011

Lögð var fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 10. mars 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
Fundargerðin var upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 09:57.

Getum við bætt efni síðunnar?