Fara í efni

Víðtækar truflanir á tölvupóstforritinu Outlook - áhrif á Hveragerðisbæ

Víðtækar truflanir hafa orðið á forritum Microsoft víðs vegar um heiminn frá því í gærkvöldi.
Helstu truflanir tengjast tölvupóstforritinu Outlook og hefur það þau áhrif á stofnanir Hveragerðisbæjar að ekki er hægt að taka á móti erindum eða skilaboðum í gegnum tölvupóstsamskipti, t.d. mottaka@hveragerdi.is. 

Eins og stendur er óljóst hvenær þetta kemst í lag en þar sem við reiðum okkur á þessi tölvuforrit er ekki ólíklegt að einhver röskun verði á svörun á tölvupóstum. 
Biðjumst við velvirðingar á þessum truflunum.


Síðast breytt: 13. nóvember 2026
Getum við bætt efni síðunnar?