Viðhorfskönnun um hraðatakmarkandi þrengingar í Hveragerði
Hveragerðisbær vinnur nú að auknu samráði við íbúa um afmörkuð málefni sveitarfélagsins.
Fyrsta könnunin snýr að nýjum hraðatakmarkandi þrengingum sem nýlega hafa verið settar upp í íbúðahverfum bæjarins.
Markmið aðgerðanna er að stuðla að auknu umferðaröryggi og draga úr hraða ökutækja á íbúðagötum.
Markmið könnunarinnar er að afla upplýsinga um upplifun íbúa af framkvæmdinni, hvort þeir telji aðgerðirnar stuðla að auknu umferðaröryggi og hvort tilefni sé til frekari útfærslu eða endurskoðunar á framkvæmdinni.
Niðurstöður könnunarinnar verða teknar saman og kynntar bæjarráði sem hluti af frekari umfjöllun um verkefnið.
Könnunin tekur aðeins nokkrar mínútur að svara og eru allir íbúar hvattir til þátttöku og hana má nálgast hér.
Könnuninni lýkur á miðnætti sunnudaginn, 1. nóvember.