Verksamningur undirritaður um fokhelda viðbyggingu
13.03
Frétt
Þann 18. febrúar 2026 var undirritaður verksamningur um verkið „Skólamörk 2, viðbygging við íþróttahús, fokhelt hús“. Helga Kristjánsdóttir undirritaði samninginn f.h. Fasteignafélags Hveragerðisbæjar og Þormóður Þórmóðson f.h. Húsameistara ehf.
Opnun tilboða í verkið var þriðjudaginn 30. janúar 2026 og eftir yfirferð Eflu verkfræðistofu á tilboðum var niðurstaðan sú að lægstbjóðandi Húsameistari ehf uppfyllti kröfur útboðsgagna. Innifalið í verkinu er öll uppsteypa, smíði stálburðavirkis, einangrun og klæðningar viðbyggingar við núverandi íþróttahús að Skólamörk 2 í Hveragerði, ásamt lögnum í jörðu og innsteyptum lögnum.
Áætlað er að verklok séu 15. desember 2026.

Síðast breytt: 13. mars 2026
Getum við bætt efni síðunnar?