Fara í efni

Verkefnastjóri þjónustuvers og þjónustuþróunar​

Hveragerðisbær auglýsir laust til umsóknar nýtt starf verkefnastjóra þjónustuvers og þjónustuþróunar á stjórnsýslusviði sveitarfélagsins​

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf þar sem áhersla er lögð á framúrskarandi þjónustu, skilvirka stjórnsýslu, stafrænar lausnir og umbætur verkferla. Starfið felur í sér daglega þjónustu við íbúa og starfsfólk ásamt þátttöku í þróun og samræmingu þjónustuferla í nánu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk sveitarfélagsins.​

Helstu verkefni og ábyrgð​

  • Þátttaka í uppbyggingu, skipulagningu og þróun þjónustuvers sveitarfélagsins.​
  • Umsjón með daglegri þjónustu, upplýsingagjöf og afgreiðslu erinda til íbúa og annarra þjónustunotenda.​
  • Umsjón með upplýsingamiðlun sveitarfélagsins m.a. á vefsíðu og samfélagsmiðlum.​
  • Þátttaka í innleiðingu og þróun stafrænna þjónustulausna og umbótum á þjónustuferlum.​
  • Samræming og uppfærsla upplýsinga, eyðublaða, sniðmáta og verklags.​
  • Umsjón með skjalavörslu, skjalaskráningu og samræmingu verklags við skjalavistun.​
  • Samræming skrifstofuinnkaupa og þátttaka í kostnaðareftirliti og hagræðingu.​
  • Samstarf og verkefnastuðningur við stjórnendur og starfsfólk þvert á starfseiningar sveitarfélagsins.​
  • Þátttaka í undirbúningi funda bæjarstjórnar, ráða og nefnda auk tilfallandi fundarritun.​

Menntunar- og hæfniskröfur​

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi.​
  • Mjög góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi og stafrænar lausnir.​
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni ásamt ríkri þjónustulund.​
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð.​
  • Hæfni til að skipuleggja, samræma og fylgja eftir fjölbreyttum verkefnum.​
  • Góð greiningarhæfni og lausnamiðuð hugsun.​
  • Nákvæmni, áreiðanleiki og hæfni til að forgangsraða verkefnum.​
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.​

Æskileg viðbótarhæfni​

  • Háskólamenntun á sviði opinberrar stjórnsýslu eða verkefnastjórnun.​
  • Reynsla af stjórnsýslu, verkefnastjórn, þjónustuþróun eða sambærilegum störfum.​
  • Þekking á starfsemi sveitarfélaga og opinberri stjórnsýslu.​
  • Reynsla af innleiðingu stafrænna lausna, umbótaverkefnum eða breytingastjórnun.​
  • Þekking á skjalavörslu- og málakerfum, svo sem OneCRM.​
  • Reynsla af upplýsingamiðlun, vefumsjón eða efnisgerð fyrir stafræna miðla.​

Nánari upplýsingar​

Um er að ræða 85% starf á stjórnsýslusviði Hveragerðisbæjar með möguleika á aukningu. Umsóknarfrestur er til og með 7. desember 2026. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Með umsókn skal skila ferilskrá, kynningarbréfi og upplýsingum um meðmælendur.​

Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar.​

Starfsstöð: Bæjarskrifstofa Hveragerðisbæjar.​

Ráðning er tímabundin til 31. janúar 2028.​

Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi aðildarfélags BHM.​

Nánari upplýsingar veitir Steinunn Erla Kolbeinsdóttir, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Hveragerðisbæjar í síma 483-4000 eða með tölvupósti: steinunn@hveragerdi.is.​

Hveragerðisbær hvetur öll áhugasöm sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um starfið. Athygli er vakin á að upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda geta verið afhentar samkvæmt upplýsingalögum.​

​


Síðast breytt: 19. nóvember 2026
Getum við bætt efni síðunnar?