Tröllahraun lausar lóðir
19 lóðir við Tröllahraun eru orðnar byggingarhæfar og verður lokið yfirborðsfrágangi gatna í maí 2027. Lóðirnar við Tröllahraun eru staðsettar vestast í bænum í fallegu umhverfi undir Hamrinum. Útsýni frá þessum lóðum er einstakt og frábært aðgengi er að opnum svæðum og ósnortinni náttúru. Í hverfinu er gert ráð fyrir vönduðum göngu- og hjólastígum.
Bæjarstjórn samþykkti þann 22. september sl. að úthluta 19 lóðum við Tröllahraun; 13 einbýlishúsalóðir, 4 parhúsalóðir (8 íbúðir) og 2 raðhúsalóðir (8 íbúðir), samtals 29 íbúðir.
Útdráttur á lóðum mun fara fram á fyrri fundi bæjarráðs í nóvember þann 12. nóvember nk. og lokar því fyrir umsóknir á hádegi 5. nóvember.
Einbýlishúsalóðir með 20% byggingaréttargjaldi:
Tröllahraun 50, Tröllahraun 57, Tröllahraun 59, Tröllahraun 61, Tröllahraun 63, Tröllahraun 65, Tröllahraun 66, Tröllahraun 67, Tröllahraun 68, Tröllahraun 70, Tröllahraun 72, Tröllahraun 74, Tröllahraun 76 og Tröllahraun 78.
Parhúsalóðir með 40% byggingarréttargjaldi:
Tröllahraun 21-23, Tröllahraun 25-27, Tröllahraun 26-28 og Tröllahraun 30-32.
Raðhúsalóðir með 40% byggingarréttargjaldi:
Tröllahraun 1-7 og Tröllahraun 2-8.
Að auki er ein eldri einbýlishúsalóð laus við Tröllahraun 50. Ef umsóknir berast um þá lóð fyrir 30. september n.k. mun vera dregið um þá lóð á fundi bæjarráðs 7. september. Umsóknir sem berast 1. október eða síðar fylgja sömu leiðbeiningum og fyrir nýju lóðirnar.
Nánar má sjá upplýsingar um lóðirnar og gjöld fyrir þær hér.
Hægt er að sjá deiliskipulagsuppdrátt af svæðinu hér.
Hægt er að sjá greinargerð deiliskipulagsins hér.