Fara í efni

Tröllahraun 50 - lóð til úthlutunar

Bæjarstjórn samþykkti þann 8. maí sl. að úthluta nú þegar lóðum við Tröllahraun en með því gefst lóðarhöfum nægur tími til að undirbúa framkvæmdir, sem geta hafist um leið og lóðirnar verða byggingarhæfar.

Á fyrri fundi bæjarráðs þann 3. júlí sl. var 11 lóðum úthlutað í Tröllahrauni eða samtals 26 íbúðum.

Nú er áður úthlutaðri lóð að Tröllahrauni 50 laus til úthlutunar og er hægt að sækja um hana þar til hádegis 27. nóvember. Umsóknir verða teknar fyrir á fundi bæjarráðs þann 4. desember 2025. 

Bæjarstjórn samþykkti að byggingarréttargjald á þessum lóðum verði 40%.

Nánar má sjá upplýsingar um lóðirnar og gjöld fyrir þær hér.

Lóðirnar við Tröllahraun, eru staðsettar vestast í bænum. Útsýni frá þessum lóðum er einstakt og frábært aðgengi er að opnum svæðum og ósnortinni náttúru. Í hverfinu er gert ráð fyrir vönduðum göngu- og hjólastígum.

Hægt er að sjá deiliskipulagsuppdrátt af svæðinu hér.
Hægt er að sjá greinargerð deiliskipulagsins hér.


Síðast breytt: 5. nóvember 2025
Getum við bætt efni síðunnar?