Tilnefningar um íþróttamann ársins í Hveragerði árið 2026
Tilnefningar um íþróttamann ársins í Hveragerði árið 2026.
Þann 6. janúar kl. 17:00 mun íþróttamaður ársins 2026 vera kynntur í Listasafni Árnesinga við hátíðalega athöfn.
Íþróttamaður Hveragerðis getur sá orðið sem er íslenskur ríkisborgari, hefur lögheimili í Hveragerði og hefur náð 16 ára aldri á því ári sem tilnefnt er fyrir. Erlendur ríkisborgari sem hefur samkvæmt Þjóðskrá haft lögheimili á Íslandi samfellt í þrjú ár (búsetuvottorð frá Þjóðskrá) telst ekki sem erlendur íþróttamaður og er gjaldgengur í kjörið
Heimilt er að tilefna íþróttamann úr Hveragerði sem hefur skráða búsetu erlendis og stundar íþrótt síðan utan bæjarmarkanna.
Þegar skilað er inn tilnefningu skal skila inn greinagerð og umsögn um viðkomandi íþróttamann þar sem m.a skal koma fram:
- Afrek / keppni erlendis á árinu (félag /landslið ) í unglinga- eða fullorðins flokki
- Afrek / keppni á Íslandi í unglinga- eða fullorðins flokki
- Afrek / keppni í Hveragerði í unglinga- eða fullorðins flokki
Þeir íþróttamenn í Hveragerði sem unnið hafa Íslandsmeistaratitil, Evrópumeistaratitil, heimsmeistaratitil eða verið í landsliðum á árinu skulu heiðraðir sérstaklega.
Hægt er að senda tilnefningu inn í íbúagátt Hveragerðisbæjar til 15. desember 2026.
Reglur um úthlutunina má finna hér.