Sveitarstjórnarkosningar í Hveragerðisbæ 16. maí 2026
Kjörfundur í Hveragerði vegna sveitarstjórnarkosninga laugardaginn 16. maí 2026 hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00 þann dag í Grunnskólanum í Hveragerði við Skólamörk 6.
Kosið verður í tveimur kjördeildum.
Í kjördeild 1 kjósa þeir sem hafa heimilisfang frá Aldinmörk til Heiðmarkar auk þeirra sem eru óstaðsettir í hús og þeirra sem búa erlendis og njóta kosningaréttar í Hveragerði.
Í kjördeild 2 kjósa þeir sem hafa heimilisfang frá Helluhrauni til Öxnalækjar.
Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördegi er í Grunnskólanum í Hveragerði við Skólamörk 6.
Aðgengi að kjörstað
Gengið er inn um aðalinngang, vestan megin, við íþróttahúsið.
Aðgengi fyrir hreyfihamlaða er austan megin, frá Reykjamörk.

Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi:
Kjósendum er skylt að gera kjörstjórn grein fyrir sér með því að framvísa persónuskilríkjum með mynd.
Þá er óheimilt að vera með áróður á eða við kjörstað meðan á kjörfundi stendur svo sem barmmerki og/eða merkingar á bifreiðum.
Hveragerði, 29. apríl 2026
Yfirkjörstjórn Hveragerðisbæjar.