Fara í efni

Stóri plokkdagurinn á sunnudaginn

Stóri plokkdagurinn verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 27. apríl 2025 næstkomandi. Eftir veturinn bíður okkur heilmikið verkefni við að hreinsa allt sem undan snjónum kom ásamt öllu öðru rusli sem finnst á víðavangi. Við þurfum öll að leggjast á eitt og ná frábærum árangri.
Plokkið er ráðlagður dagskammtur af hreyfingu og um leið frábær skemmtun.
Plokkið er einnig:
Frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa
Einstaklingsmiðað
Hver á sínum hraða
Frábært fyrir umhverfið
Fegrar nær samfélagið
Öðrum góð fyrirmynd
Við ætlum að hittast við Lystigarðinn fossflöt klukkan 11 á sunnudaginn þar sem tínur og pokar verða til staðar. Klukkan 13:00 hittumst við svo aftur í Lystigarðinum og fáum okkur léttar veitingar.

Síðast breytt: 25. apríl 2025
Getum við bætt efni síðunnar?