Fara í efni

Skýrsla Veðurstofu Íslands byggir undir öryggi íbúa Hveragerðisbæjar

Í dag kom út vönduð og metnaðarfull skýrsla Veðurstofu Íslands um langtímahættumat vegna hraunavár á Reykjanesskaga. Skýrslan er hluti af umfangsmiklu verkefni Veðurstofunnar í að meta heildstætt eldfjallavá á öllum Reykjanesskaganum og er útgáfa hennar mikið fagnaðarefni.

Hér er hlekkur á skýrsluna.

Niðurstöður skýrslunnar styðja við það sem þegar var vitað og umbyltir ekki þekkingu á hvar hraunavá steðjar að byggð og innviðum á Reykjanesskaga. Niðurstöðurnar eru ekki spá um aukna áhættu eða aukið hættustig í Hveragerði af völdum hraunflæðis.

Skýrslan dýpkar hins vegar þekkingu okkar og skilning á mögulegum sviðsmyndum við eldsumbrot á Hengilsvæðinu í nágrenni Hveragerðisbæjar. Einnig er hún gott og mikilvægt innlegg til að uppfæra viðbragðsáætlanir bæjarins í samstarfi við Almannavarnir. Farið verður í þá vinnu í kjölfar útgáfu skýrslunnar og sérstakrar skýrslu sem enn er í vinnslu um vesturhluta Árnessýslu. Þannig munu niðurstöður skýrslunnar auka á öryggi bæjarbúa í Hveragerði en það mun alltaf verða leiðarljós bæjaryfirvalda á hverjum tíma.

Langtímahættumat vegna hraunavár segir til um hvaða svæði eru möguleg gosupptakasvæði og hvaða svæði gætu verið útsett fyrir hraunflæði út frá gossögu svæðisins. Niðurstöðurnar verða því mikilvægt tæki í höndum bæjarstjórnar við skipulag byggðar til framtíðar með það fyrir augum að tryggja öryggi íbúa og innviða.

Starfsfólk Hveragerðisbæjar var hluti af stýrihóp Veðurstofu sem vann skýrsluna og stuðst var við efni hennar í vinnu við nýsamþykkt aðalskipulag bæjarins. Að öðru leyti hefur skýrslan verið trúnaðargagn Veðurstofu Íslands þar til nú.

Samhliða birtingu skýrslunnar mun Veðurstofan opna vefsíðu og gagnvirka kortasjá, eldfjallava.is, þar sem hægt er að nálgast upplýsingar og fróðleik. Þar verður hægt að senda inn fyrirspurnir og nálgast svör. Þetta er gert til að íbúar á áhrifasvæðum og landsins alls geti nálgast allar upplýsingar á sama stað.

Alls eru komnar út fjórar skýrslur í verkefninu sem hófst snemma árs 2024 og á að ljúka 2027. Á þessu ári bætast við fjórar skýrslur um sprunguvá, tvær skýrslur til viðbótar um hraunavá og ein skýrsla um jarðskjálftavá. Skýrslur um gjóskufall, gasmengun og grunnvatnsmengun fylgja svo í kjölfarið á næsta ári. Að taka saman mat á eldfjallavá í einu verkefni fyrir svæði þar sem til staðar eru sjö eldstöðvakerfi, sextán sveitarfélög og fjöldi mikilvægra innviða, er umfangsmikið verkefni og í raun einstakt á heimsvísu.

Hveragerðisbær þakkar Veðurstofu Íslands fyrir vandaða vinnu og gott innlegg í uppfærslu viðbragðsáætlunar í samstarfi Hveragerðisbæjar og Almannavarna. 


Síðast breytt: 22. apríl 2026
Getum við bætt efni síðunnar?