Fara í efni

Skólahald 26. mars 2026- appelsínugul viðvörun.

Almannavarnir hvetja þá sem hafa tök á að halda kyrru á meðan að veðurviðvörun varir. Því er mikilvægt að meta aðstæður mjög vel áður enn farið er af stað.

Skólastarf fer fram að svo stöddu í leikskólum og grunnskóla í Hveragerði, nema annað sé sérstaklega tilkynnt. Foreldrar eru eindregið hvattir til að meta hvort aðstæður séu öruggar fyrir börn að komast í og úr skóla og fylgja börnum sínum inn í skóla.

Athugið: Skólaakstur fellur niður um morguninn enn skoðað verður með heimakstur þegar líður að hádegi.

Hægt er að nálgast viðbragðsáætlun Grunnskólans í Hveragerði hér: https://grunnskoli.hveragerdi.is/is/foreldrar/vidbrogd-vid-ovedri

Forföll vegna veðurs eru skiljanleg og skulu tilkynnt grunnskóla. Foreldrar leikskólabarna þurfa ekki að tilkynna fjarveru leikskólabarna sérstaklega.

Upplýsingar verða uppfærðar ef forsendur breytast og mikilvægt að fylgjast vel með tölvupósti og öðrum upplýsingamiðlum skóla.


Síðast breytt: 25. mars 2026
Getum við bætt efni síðunnar?