Fara í efni

Skemmdarverk unnin á gervigrasvellinum

Um helgina voru unnin stórfelld skemmdarverk á undirlaginu fyrir nýja gervigrasið uppi í Dal. Ekið hefur verið inn á svæðið, í gegnum girðingu, spólað og undirlagið spænt upp.

Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu sem hefur það til rannsóknar. Unnið verður hratt og örugglega að endurbótum með verktakanum. Í kjölfarið verður sjálft gervigrasið lagt á, völlurinn vígður og tekin í notkun af knattspyrnuiðkendum í Hveragerði.


Síðast breytt: 20. apríl 2026
Getum við bætt efni síðunnar?