Fara í efni

Samtal um íþróttir í FSU

SAMTAL UM ÍÞRÓTTIR
FJÖLBRAUTASKÓLA SUÐURLANDS
Föstudaginn 24. apríl klukkan 13:00 - 15:00.

Raddir ungs fólks er samtal um þátttöku í samfélaginu, upplifun í íþrótta- og æskulýðsstarfi og leiðir til framtíðar við forystufólk sveitarfélaga. Fundirnir eru samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ, Svæðisstöðva íþróttahéraða og Ungmennaráðs UMFÍ og fara fram um allt land vorið 2026.

Markmið samtalsins er að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks á aldrinum 15–25 ára og skapa vettvang til að koma sjónarmiðum á framfæri í samtali á jafningjagrundvelli við forsvarsfólk sveitarfélaga og íþróttahreyfingarinnar.

Ólafur Stefánsson, fyrrum landsliðsfyrirliði í handknattleik, heimsþekktur og meistaranemi í íþróttasálfræði, stýrir fundinum í samstarfi við Ungmennaráð UMFÍ og svæðisfulltrúa íþróttahéraða á hverjum stað.

Allir niðurstöður fundanna verða nýttar í heildstæðri stefnumótun íþróttahreyfingarinnar, sem nú stendur yfir. Verkefnið er styrkt af Erasmus+ og byggir á þeirri sýn að aðstæður og áskoranir ungs fólks eru ólíkar eftir landshlutum. Með því að halda fundi á átta stöðum um allt land er leitast við að umræðan endurspegli raunverulegar þarfir á hverjum stað.

Skráðu þig hér með QR kóðanum og taktu þátt í samtalinu.


Síðast breytt: 20. apríl 2026
Getum við bætt efni síðunnar?