Fara í efni

Ráðning bæjarstjóra Hveragerðisbæjar

Í samræmi við málefnasamning Okkar Hveragerðis og Framsóknar var auglýst eftir bæjarstjóra Hveragerðisbæjar þann 16. júní sl. Umsóknarfrestur rann út 30. júní. Alls sóttu 23 um stöðu bæjarstjóra en 4 drógu umsókn sína til baka, bæjarstjórn vill þakka umsækjendum kærlega fyrir sýndan áhuga á sveitarfélaginu. Meirihluti bæjarstjórnar mun leggja fram tillögu á næsta bæjarstjórnarfundi að Geir Sveinsson verði ráðinn sem bæjarstjóri Hveragerðisbæjar og mun hann hefja störf í upphafi ágústmánaðar.

Geir er fæddur 1964 og hefur verið sjálfstætt starfandi síðustu tvö ár. Hann er með MBA próf frá Háskóla Íslands auk menntunar í markaðssetningu á netinu og meistaragráðu í þjálfun. Geir er Íslendingum flestum kunnur sem einn af sterkustu landsliðsmönnum Íslands í handbolta en hann þjálfaði íslenska landsliðið um tíma og hefur sinnt þjálfun og stjórnun í Þýskalandi síðustu ár.

„Auk menntunar og reynslu Geirs er hann öflugur leiðtogi og hefur farsæla reynslu af því að vinna með fólki. Það er ekki síst sá hæfileiki sem við leituðumst eftir í fari bæjarstjóra. Við erum full tilhlökkunar vegna komandi verkefna og samstarfs og bjóðum Geir og fjölskyldu velkomin í Hveragerði.“ Segir Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, forseti bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar.

„Þetta var erfitt val og margar umsóknir mjög góðar en við erum afskaplega ánægð með ráðninguna. Að öllum umsækjendum ólöstuðum þá hefur Geir þá kosti sem við leituðum að í fari bæjarstjóra. Geir hefur sýnt það og sannað að hann er leiðtogi, markmiðadrifinn en umfram allt hefur hann sterka sýn og mikinn metnað. Við erum ákaflega spennt að takast á við verkefnin sem bíða okkar með Geir í brúnni.“ segir Sandra Sigurðardóttir, formaður bæjarráðs Hveragerðisbæjar.

„Ég er nýjum meirihluta Hveragerðisbæjar mjög þakklátur fyrir það traust og tækifæri sem mér hefur verið sýnt. Ég mun í góðu samstarfi við alla bæjarfulltrúa og starfsfólk Hveragerðisbæjar leggja mig allan fram við að gera góðan bæ enn betri. Tækifærin eru fjölmörg og spennandi tímar framundan í ört vaxandi og kraftmiklu sveitarfélagi sem Hveragerðisbær er.“ segir Geir Sveinsson.

Ráðningarsamningur við Geir tekur formlega gildi þegar hann hefur verið staðfestur af næsta bæjarráðsfundi og birtur opinberlega í kjölfarið.


Síðast breytt: 14. júlí 2022
Getum við bætt efni síðunnar?