Fara í efni

Óskað eftir sögum og minningum tengdum Hveragerði

Í sumar verður settur upp minninga- og söguveggur á bókasafninu í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar.

Átt þú skemmtilega bernskuminningu, sögur af fólki sem setti svip sinn á samfélagið eða stutta frásögn tengda Hveragerði sem þú ert til í að deila?

Þú getur sent inn frásögn í gegnum heimasíðu bókasafnsins eða í gegnum hlekk hér.

Einnig má senda bókasafninu skilaboð á samfélagsmiðlum eða tölvupóst í netfangið bokasafn@hveragerdi.is


Síðast breytt: 22. maí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?