Fara í efni

Nýr ærslabelgur á leiðinni

Verið er að undirbúa uppsetningu á nýjum ærslabelg í stað þess gamla sem er því miður ónýtur. Búið er að panta nýjan belg hjá Hreinum görðum og verður hann settur upp um leið og hann kemur til landsins.

Belgurinn er 161 fm að stærð og ætlaður fyrir allt að 32 manns.

Garðyrkjudeild Hveragerðisbæjar er að vinna í jarðveginum undir belgnum til að vel fari um hann og endingin verði eins og best verður á kosið. Einnig huga þau að umhverfinu í kringum belginn.

Til að tryggja góða umgengni um belginn verða settar upp myndavélar til vöktunar allan sólarhringinn.

Er það von bæjaryfirvalda að nýi ærslabelgurinn gefi börnum í Hveragerði fjölmargar gleðistundir næstu árin.


Síðast breytt: 30. júní 2026
Getum við bætt efni síðunnar?