Fara í efni

Mánuði myndlistar fagnað í Hveragerði

Í tilefni Mánaðar myndlistar bjóða myndlistarkonurnar Andrína Guðrún Jónsdóttir og Guðrún Arndís Tryggvadóttir alla hjartanlega velkomna á hátíð á vinnustofum sínum að Mánamörk 3-5 í Hveragerði, sunnudaginn 18. október frá kl. 12:00 til 18:00.

Tilgangur Mánaðar myndlistar er að kynna störf myndlistarmanna fyrir almenningi, gera starfsgreinina aðgengilegri og auka umræðu um myndlist á Íslandi. Þær Andrína og Guðrún munu gefa gestum innsýn í það hvað felst í raun í því að starfa við myndlist. Í myndlistarfaginu felst bæði hugmyndaþróunin sem slík sem og val á útfærsluaðferðum sem henta og að lokum miðlun afrakstursins til almennings því myndlist á sér að lokum stað í samræðunni á milli verksins og áhorfandans.

Mánamörk 3-5 er auðvelt að finna en hún er stóra svarta iðnaðarhúsið við þjóðveginn, rétt austan við verslunarmiðstöðina Sunnumörk. Inngangur að vinnustofu Guðrúnar er um hurð Listrýmis en vinnustofa Andrínu er þremur hurðum austar og merkt Gallerí Spóa.


Síðast breytt: 8. október 2026
Getum við bætt efni síðunnar?