Fara í efni

Litakort fyrir Blómstrandi daga í Hveragerði 14.-17. ágúst.

Nú er rúm vika í bæjarhátíðina okkar, Blómstrandi daga, sem verður að þessu sinni dagana 14.-17. ágúst. Er þetta afmælishátíð þar sem Blómstrandi dagar eru 30 ára.
Þetta er bæjarhátíðin okkar allra og því mikilvægt að bæjarbúar taki virkan þátt í undirbúningnum og hátíðahöldunum sjálfum með viðburðum, skreytingum og fleiru. Við viljum að sjálfsögðu taka sem allra best á móti gestum sem koma í bæinn.

Hverfalitirnir verða þeir sömu og í fyrra og er uppfært kort hér með færslunni. 💛❤️💚🩷💙🧡
🎗 Verðlaun verða veitt fyrir best skreyttu götuna, húsið með frumlegustu skreytinguna og best skreytta húsið. 🏆 
 
Verkefnastjóri hátíðarinnar er Rakel Magnúsdóttir og hægt að hafa samband við hana í gegnum netfangið rakel@hveragerdi.is
 
 

Síðast breytt: 8. ágúst 2025
Getum við bætt efni síðunnar?