Listamannahúsið Varmahlíð 2026 - opið fyrir umsóknir
Hveragerðisbær auglýsir eftir umsóknum um dvöl í listamannahúsinu Varmahlíð í Hveragerði fyrir árið 2026.
Horft er til allra listamanna óháð því hvort þeir eru skráðir í fagfélög og er fólk úr hvers kyns listgreinum hvatt til að sækja um dvöl.
Íbúðarhúsið Varmahlíð er búið öllum húsgögnum og eldunartækjum. Gestalistamenn fá endurgjaldslaus afnot af húsinu til að vinna að listgrein sinni en gert er ráð fyrir að þeir kynni verk sín og listgrein í samfélaginu.
Dvalartímabilum fyrir árið 2026 er úthlutað frá janúar til og með desember, 2 til 4 vikur í senn.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Hjálmarsdóttir, menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi, sími 898 8608, netfang: sigridurhj@hveragerdi.is.
Sótt er um dvöl í Varmahlíðarhúsinu í gegnum íbúgátt Hveragerðisbæjar.
Varmahlíðarhúsið er eitt elsta íbúðarhús Hveragerðisbæjar, reist árið 1929. Húsið er einlyft, bárujárnsklætt timburhús með lágreistu mænisþaki. Húsið hefur hlotið faglega endurgerð og er dvöl í því endurgjaldslaus fyrir listamenn en óskað er eftir því að þeir kynni listsköpun sína og efli með því menningaráhuga í Hveragerði.
Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2025.