Fara í efni

Laust starf sem leikskólakennari og/eða leiðbeinandi

Eruð þið ekki til í að slást í hóp faglegra og öflugra leikskólakennara við leikskólann Óskaland? Já fleiri, við þurfum líka öfluga og faglega leiðbeinendur við leikskólann til að móta framtíðina í gróskumiklum leikskóla?

Leikskólinn Óskaland er níu deilda leikskóli með pláss fyrir 152 börn. Óskaland er staðsett við Finnmörk 1, í Hveragerði í grónu hverfi þar sem stutt er í fjölbreytta skógi vaxna náttúru. 2025 voru fjórar nýjar deildir teknar í notkun við leikskólann auk glæsilegrar lóðar.

Einkunnarorð Óskalands eru: Leikur – lífsgleði – lærdómur

Í Óskalandi er sjálfsprottinn leikur aðal kennslutækið auk þess sem unnið með grenndar- og útikennslu, Vináttuverkefni Barnaheilla, Hugarfrelsi og Lubba.

Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum leikskólakennurum og/eða leiðbeinendum með góða hæfni í mannlegum samskiptum. Um er að ræða bæði stöðu til frambúðar og afleysingu í fæðingarorlofi með möguleika á áframhaldandi starfi. Viðkomandi þurfa að vera tilbúnir til að taka þátt í uppeldi og menntun barna í nánu samstarfi við stjórnendur og hafa gott vald á íslenskri tungu. Umsækjendur skulu hafa hreint sakavottorð.

Fríðindi í starfi:

  • Forgangur í leikskólapláss
  • Frítt fæði
  • Stytting vinnuvikunnar
  • Sundkort í sundlaugina í Laugaskarði

Umsóknarfrestur er til 10.nóvember nk.

Umsóknum skal skilað á netfangið oskaland@hveragerdi.is ásamt ferilskrá og meðmælendum.

Nánari upplýsingar veita Gunnvör Kolbeinsdóttir skólastjóri og Eva Hrönn Jónsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 4834139 eða á netfangið: oskaland@hveragerdi.is

Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags.


Síðast breytt: 29. október 2026
Getum við bætt efni síðunnar?