Laust starf í Sundlauginni í Laugaskarði
Sundlaugin í Laugaskarði auglýsir eftir kvenkyns starfsmanni við Sundlaugina í Laugaskarði. Um er að ræða 100% starf.
Starfið er unnið í vaktavinnu sem felst m.a. í baðvörslu, gæslu við sundlaugarmannvirki og líkamsrækt, þrif, afgreiðslu og eftirlit með tækjabúnaði í tækjarýmum.
Hæfniskröfur:
Starfsmaðurinn þarf að hafa ríka þjónustulund að upplagi, gott lag á börnum og unglingum.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
Hreint sakavottorð (skv. 10. grein Æskulýðslaga)
Skilyrði fyrir ráðningu er að starfsmaður standist hæfnispróf sundstaða.
Laun eru skv. kjarasamningi FOSS og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknum skal skilað rafrænt á www.hveragerdi.is
Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí og skal senda umsóknir á thorsteinn@hveragerdi.is
Nánari upplýsingar gefur:
Forstöðumaður sundlaugarinnar í Laugaskarði í síma: 6592048 eða thorsteinn@hveragerdi.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.