Fara í efni

Jól í bæ 2026 – kallað eftir viðburðum fyrir aðventu og jól

Nú styttist í aðventuna og undirbúningur fyrir Jól í bæ 2026 er hafinn.

Hveragerðisbær mun að venju gefa út sameiginlega viðburðadagskrá fyrir aðventu og jól, bæði á prentuðu og rafrænu formi.

Af því tilefni er kallað eftir upplýsingum frá fyrirtækjum, félagasamtökum, stofnunum og einstaklingum sem hyggjast standa fyrir viðburðum eða öðrum skemmtilegum uppákomum yfir hátíðarnar.

Markmiðið er að safna fjölbreyttum viðburðum á einn stað og auðvelda íbúum og gestum Hveragerðis að sjá hvað verður um að vera í bænum. Dagskráin nær yfir tímabilið 29. nóvember 2026 til 6. janúar 2027, frá fyrsta sunnudegi í aðventu til þrettándans.

Undanfarin ár hefur dagskráin meðal annars innihaldið tónleika, jólamarkaði, smiðjur, upplestur, sýningar, opin hús, jólaböll, helgihald og ýmsar aðrar uppákomur. Við hvetjum alla sem hafa eitthvað skemmtilegt á döfinni til að láta vita hvort sem hugmyndirnar eru stórar eða smáar.

Nýir þátttakendur eru sérstaklega velkomnir og við hvetjum þau sem ekki hafa verið með áður til að láta til sín taka. Það þarf ekki að vera stór viðburður til að gleðja bæjarbúa og gesti yfir hátíðarnar.

Hvernig er hægt að taka þátt?

Þeir sem vilja koma viðburði á framfæri eru hvattir til að senda inn eftirfarandi upplýsingar:

- Heiti viðburðar

- Dagsetningu og tímasetningu

- Staðsetningu

- Stutta lýsingu á viðburðinum

- Upplýsingar um aðgangseyri og skráningu, ef við á

- Nafn og samskiptaupplýsingar tengiliðar

Skilafrestur er miðvikudaginn 18. nóvember 2026.

Vinsamlegast sendið upplýsingarnar á vidburdir@hveragerdi.is

Stefnt er að því að birta sameiginlega jóladagskrá föstudaginn 27. nóvember.

Við hlökkum til að sjá hvað Hvergerðingar hafa upp á að bjóða og skapa saman líflega og notalega jólastemningu í bænum.

Jól í bæ 2026 – tökum þátt í jólastemningunni.


Síðast breytt: 6. nóvember 2026
Getum við bætt efni síðunnar?