Fara í efni

Jól í bæ 2026 - Dagskráin komin út og hátíðahöldin hefjast á sunnudaginn.

Það verður sannkölluð jólastemning í Hveragerði á næstu vikum þegar Jól í bæ hefst sunnudaginn 29. nóvember. Fjölbreytt dagskrá fyrir alla aldurshópa stendur yfir fram yfir áramót og býður upp á fjölmörg tækifæri til samveru, upplifunar og notalegra stunda í bænum.

Fyrsti sunnudagur í aðventu, 29. nóvember, markar upphaf hátíðarhaldanna. Dagurinn hefst með kósýdegi í Sundlauginni Laugaskarði þar sem boðið verður upp á notalega jólastemningu, heitt kakó og piparkökur. Klukkan 17:00 verður kveikt á jólatrénu í Lystigarðinum Fossflöt. Þar verður hátíðleg dagskrá með ávarpi, söng Barna- og unglingakórs Hveragerðiskirkju og heimsókn jólasveinanna. Um kvöldið, klukkan 20:00, verða árlegir aðventutónleikar í Hveragerðiskirkju.

Á næstu vikum verður ýmislegt á dagskrá, meðal annars jólatónleikar, jólamarkaðir, föndur, bókmenntaviðburðir, fjölskylduskemmtanir og notalegar samverustundir. Fyrirtæki, félagasamtök, menningarstofnanir og einstaklingar leggja sitt af mörkum til að skapa fjölbreytta og skemmtilega aðventu. Í ár er jafnframt sérstakt tilefni til að fagna þar sem Hveragerðisbær hefur haldið upp á 80 ára afmæli sitt á árinu.

Dagskráin aðgengileg á vef og í prentuðu formi

Viðburðadagatalið Jól í bæ 2026 er aðgengilegt á heimasíðu Hveragerðisbæjar. Einnig má finna einstaka viðburði undir „Viðburðir“ á vef bæjarins, þar sem hægt er að kynna sér dagskrána nánar. Prentuð dagskrá mun jafnframt liggja frammi á völdum stöðum í bænum, meðal annars í verslunum, á bæjarskrifstofunni og í Sundlauginni Laugaskarði.

Hveragerðisbær færir öllum þeim fyrirtækjum, stofnunum, félagasamtökum og einstaklingum sem koma að dagskránni innilegar þakkir fyrir þátttökuna og framlag sitt til samfélagsins.

Við hvetjum bæjarbúa og gesti til að kynna sér dagskrána, taka þátt í viðburðunum og njóta aðventunnar saman í Hveragerði.

Skoðaðu dagskrána: Jol-i-bae-Vidburdagatal

https://www.hveragerdi.is/is/mannlif/vidburdir/allir-vidburdir


Síðast breytt: 27. nóvember 2026
Getum við bætt efni síðunnar?