Fara í efni

Innritun barna í leikskóla Hveragerðisbæjar fyrir skólaárið 2026-2027

Umsóknir um leikskólavist og ósk um flutning á milli leikskóla fyrir skólaárið 2026-2027 þurfa að berast fyrir 24. apríl 2026 og er þeim skilað inn á íbúagátt Hveragerðisbæjar (linkur).

Plássum er úthlutað í kennitöluröð, þar sem elstu börnin fá boð fyrst og svo framvegis.

Í fyrstu úthlutun verður þeim börnum sem sótt hafa um leikskólavist fyrir 24 apríl boðin vistun og skilyrði fyrir úthlutun er að lögheimili barns sé skráð í Hveragerði.

Ef breyta þarf upplýsingum í umsókn er bent á að gera það fyrir 24. apríl.

Úthlutun leikskólaplássa fyrir skólaárið 2026-2027 skiptist í tvennt:

  • Fyrst verður úthlutað þeim leikskólaplássum sem hægt verður að tryggja frá og með ágúst - október 2026. Stefnt er að foreldrar þeirra barna sem fá úthlutað leikskólaplássi fái upplýsingar um það eftir 1. maí 2026.
  • Í seinni hluta úthlutunar er unnið eftir upplýsingum sem fram koma eftir að fyrri úthlutun er lokið.

Boð um leikskólapláss munu berast foreldrum inn á island.is og mikilvægt að upplýsingar í umsókn um leikskólapláss séu réttar. Mikilvægt er að þeir sem fá úthlutað leikskólaplássi bregðist fljótt við svo hægt verði að vinna umsóknir áfram með skilvirkum hætti.


Síðast breytt: 10. apríl 2026
Getum við bætt efni síðunnar?