Fara í efni

Hveragerði 80 ára

Þann 29. apríl 2026 eru 80 ár frá stofndegi sveitarfélagsins Hveragerðis. Þessum tímamótum verður fagnað með fjölda viðburða sem dreifast yfir afmælisárið. Um þessar mundir er bæklingur borinn út á hvert heimili í Hveragerði þar sem stiklað er á stóru í upptalningu á viðburðum ársins en þeir verða allir auglýstir nánar á vef bæjarins. 

Á afmælisdaginn sjálfan kemur forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, í heimsókn og hittir unga sem aldna í Hveragerði. Hver viðburðurinn rekur svo annan yfir allt árið og sumarhátíðirnar okkar verða með veglegu sniði í tilefni af stórafmælinu. 

Sérstök viðburðasíða fyrir 80 ára afmælið hefur verið sett upp á vef Hveragerðisbæjar. Hér er slóð á þá síðu.

Einnig má senda upplýsingar um viðburði með mynd, tímasetningu og stuttri kynningu á viðburðinum á netfangið mottaka@hveragerdi.is. Viðburðinum verður þá bætt við afmælisdagskrána.

Hér er hlekkur á afmælisbæklinginn sem borinn er í hús í bænum. 

Gleðilegt afmælisár!


Síðast breytt: 23. mars 2026
Getum við bætt efni síðunnar?