Hólmabrún lækkuð gjöld
25.09
Frétt
Á fundi bæjarstjórnar 22. september var ákveðið að lækka byggingarréttargjald á óuthlutuðum einbýlishúsalóðum í Hólmabrún niður í 15% af gatnagerðargjaldi.
Um er að ræða Hólmabrún 2, 4, 6 og Hólmabrún 15. Forsendur lækkunar byggingarréttargjalda á Hólmabrún 2, 4 og 6 er sú að áætlaður jarðvinnukostnaður á þeim lóðum er verulega hærri en á öðrum lóðum í kring. Forsendur lækkunar á byggingarréttargjaldi á Hólmabrún 15 er að lega þeirrar lóðar takmarkar möguleika hönnunar mannvirkis.
Nánar má sjá upplýsingar um lóðirnar og gjöld fyrir þær hér.
Síðast breytt: 25. september 2026
Getum við bætt efni síðunnar?