Frístundaleiðbeinandi með áherslu á stuðning.
Langar þig að hafa jákvæð áhrif á líf barna og ungmenna?
Frístundamiðstöðin Bungubrekka í Hveragerði leitar að öflugum frístundaleiðbeinanda með áherslu á stuðning. Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að skapa öruggt, skapandi og uppbyggilegt umhverfi þar sem öll börn fá tækifæri til þátttöku, eflingar og vellíðunar.
Starfið felur í sér að styðja börn í daglegu frístundastarfi, efla félagsfærni þeirra og sjálfstraust og taka virkan þátt í fjölbreyttu starfi Bungubrekku þar sem leikur, sköpun og hreyfing eru í fyrirrúmi.
Helstu verkefni
- Undirbúningur og framkvæmd frístundastarfs ásamt tiltekt að starfi loknu.
- Leiðbeina og styðja börn með styrkleika þeirra að leiðarljósi.
- Hvetja til leiks, sköpunar og heilbrigðra samskipta.
- Stuðla að öruggu og jákvæðu félagsumhverfi.
- Veita stuðning í samskiptum, úrlausn ágreinings og tilfinningalegri úrvinnslu.
- Taka að sér fjölbreytt hlutverk eftir þörfum, svo sem að stýra smiðjum eða fylgja eftir viðveru og mætingu.
- Taka þátt í skipulagningu smiðja, klúbba og annarra viðburða í samráði við forstöðumann.
- Taka þátt í sumarnámskeiðum Bungubrekku.
Við leitum að einstaklingi sem
- Hefur menntun eða reynslu sem nýtist í starfi með börnum og ungmennum.
- Býr yfir góðri samskipta- og samvinnuhæfni.
- Hefur jákvætt og lausnamiðað hugarfar.
- Er sveigjanlegur, hjálpsamur og ábyrgur.
- Sýnir þolinmæði, umhyggju og virðingu í samskiptum.
- Hefur hæfni til að lesa í aðstæður og skapa traust.
- Hefur tæknilæsi eða áhuga á að nýta tækni í starfi.
- Getur framvísað hreinu sakavottorði.
Við bjóðum
- Fjölbreytt og skapandi starf þar sem engir tveir dagar eru eins.
- Sterkt teymi og góðan stuðning frá reyndu samstarfsfólki.
- Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á líðan og þroska barna og ungmenna.
- Starf í metnaðarfullu og skemmtilegu starfsumhverfi.
- Starfshlutfall 50–70%.
- Styttingu vinnuvikunnar samkvæmt kjarasamningi.
Umsókn
Umsóknarfrestur er til og með 1. september. Umsóknum verður svarað jafnóðum og þær berast og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Sótt er um starfið rafrænt í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar. Með umsókn skulu fylgja ferilskrá og kynningarbréf.
Nánari upplýsingar veitir Liljar Mar Pétursson, forstöðumaður frístundamála, í netfanginu liljar@hvg.is.