Framkvæmdir á suðurlandsvegi við Hólmsá 23. maí
22.05
Frétt
Tilkynning
Laugardaginn 23. maí er stefnt á að fræsa hvinrendur í kafla á suðurlandsvegi við Hólmsá. Starfsmenn verða við vinnu á milli akreina sem ætti ekki að valda miklum töfum á umferð en hraðinn verður tekinn niður á vinnusvæðinu.
Kaflinn er 1.120m langur. Viðeigandi merkingar verða settar upp.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 08:00 til kl. 13:00 laugardaginn 23. maí
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.
Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Ábyrgðarmaður verktaka er Guðmundur 821-9019.
Síðast breytt: 22. maí 2026
Getum við bætt efni síðunnar?