Frábær þátttaka í sumarlestrinum
Þátttaka í sumarlestri barna í Hveragerði í ár var með allra mesta móti og 114 börn skráðu sig til leiks.
Verkefnið í ár var hannað af Blæ Guðmundsdóttur, teiknara og barnabókahöfundi, og bar yfirskriftina Lestrarsprettur Gúnda geithafurs. Börnin sem tóku þátt fengu lestrarhefti og landakort. Markmiðið var að lesa í 15 mínútur á dag, merkja jafnóðum við áfangastaði Gúnda og hjálpa honum þannig að finna gras að bíta. Eftir fjórða hvern lestur gátu börnin komið á bókasafnið, fengið límmiða í lestrarheftið og happamiða til að setja í lukkupottinn.
Dregið var úr lukkupottinum í hverri viku og höfðu 308 happamiðar ratað í pottinn í lok sumars. Uppskeruhátíð var í september. Töframaðurinn Einar Aron mætti, boðið var upp á veitingar og fleiri heppnir þátttakendur hlutu vinninga.
Bókasafnið í Hveragerði hefur um árabil staðið fyrir sumarlestri fyrir börn. Undanfarin ár hefur verkefnið verið unnið í samstarfi almenningsbókasafna og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Tæplega þrjátíu söfn stóðu fyrir sumarlestri í ár.