Fara í efni

Fjúkandi rusl og sorptunnur – salt og sandur á gámasvæði

Nokkuð hefur borið á því í vondum veðrum undanfarið að rusl er að fjúka frá heimilum, fyrirtækjum og úr sorpílátum. Nokkur sorpílát hafa líka fokið til og skemmst. Vert er að minna á að húseigendur bera ábyrgð á því samkvæmt samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Hveragerðisbæ að ganga þannig frá sorpílátum að þau verði ekki fyrir skemmdum af völdum veðurs. Nú þegar snjóað hefur er einnig vert að benda íbúum á að halda góðu aðgengi að sorpílátum sínum svo auðveldara sé að tæma. Sandur og salt fæst frítt á gámasvæði bæjarins í Bláskógum en það verður að koma með eigið ílát með sér. Mikið hefur fokið frá byggingarsvæðum í bænum því er rétt að brýna fyrir framkvæmdaraðillum að huga að þeim svæðum sem þeir starfa á. Umhverfisfulltrúi.


Síðast breytt: 24. mars 2026
Getum við bætt efni síðunnar?