Félagsráðgjafi velferðarsviðs Hveragerðisbæjar
Hveragerðisbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan félagsráðgjafa til starfa á velferðarsviði sveitarfélagsins.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér félagslega ráðgjöf, mat á þjónustuþörf, úrlausn flókinna mála og samhæfingu þjónustuúrræða. Á velferðarsviði er lögð áhersla á náið faglegt samstarf, þverfaglega teymisvinnu og samræmda og vandaða þjónustu við íbúa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Félagsleg ráðgjöf og stuðningur við einstaklinga og fjölskyldur.
- Greining og mat á félagslegum aðstæðum og þjónustuþörf.
- Móttaka, mat og úrvinnsla umsókna um fjárhagsaðstoð, félagslegt húsnæði, sérstakan húsnæðisstuðning og önnur þjónustuúrræði.
- Gerð, samhæfing og eftirfylgni einstaklingsbundinna þjónustuáætlana.
- Faglegur undirbúningur mála og þátttaka á þverfaglegum fagfundum.
- Samstarf við aðra félagsráðgjafa, stofnanir og þjónustuaðila.
- Fagleg skráning, skjalfesting og meðferð upplýsinga.
- Sinnir málstjórn á öðru stigi á grundvelli farsældarlaga.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun í félagsráðgjöf og gilt starfsleyfi sem félagsráðgjafi á Íslandi.
- Hæfni til sjálfstæðrar faglegrar greiningar og úrlausnar flókinna mála.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni.
- Hæfni til að vinna undir álagi og takast á við krefjandi aðstæður.
- Vönduð og nákvæm vinnubrögð.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Góð almenn tölvukunnátta.
Æskileg viðbótarhæfni
- Reynsla af félagslegri ráðgjöf og málavinnslu innan félagsþjónustu sveitarfélaga.
- Þekking á lögum og reglum um félagsþjónustu sveitarfélaga og opinbera stjórnsýslu
- Reynsla af þverfaglegu samstarfi og gerð þjónustuáætlana.
- Þekking og reynsla af notkun OneCRM skjalavörslukerfis.
- Þekking og reynsla af notkun Business Central (BC) fjárhagskerfis.
Nánari upplýsingar
Um er að ræða 80% starf á velferðarsviði Hveragerðisbæjar. Umsóknarfrestur er til og með 30.11.2026. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Með umsókn skal skila ferilskrá, kynningarbréfi og upplýsingum um meðmælendur.
Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar.
Starfsstöð: Velferðarsvið Hveragerðisbæjar.
Ráðning er ótímabundin.
Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi aðildarfélags BHM.
Nánari upplýsingar veitir Erna H. Solveigardóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Hveragerðisbæjar í síma 483-4000 eða með tölvupósti: erna@hveragerdi.is.
Hveragerðisbær hvetur öll áhugasöm sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um starfið. Athygli er vakin á að upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda geta verið afhentar samkvæmt upplýsingalögum.